155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[14:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir þessa sérstöku umræðu um húsnæðisliðinn í vísitölu neysluverðs. Mikil og endurtekin umræða hefur átt sér stað um húsnæðislið vísitölunnar og það gerist einkum þegar húsnæðis- og leiguverð víkur frá annarri verðlagsþróun. Fjöldi skýrslna hefur verið birtur af ýmsum nefndum og hópum. Niðurstöður þeirra eru undantekningarlaust að aðferð Hagstofunnar við útreikning á vísitölu neysluverðs sé í fullu samræmi við alþjóðlega viðurkenndar aðferðir. Verkefnisstjórn um endurmat á ramma peningastefnunnar skilaði yfirgripsmikilli skýrslu til forsætisráðherra í júní 2018. Verkefnisstjórnin taldi óheppilegt að verðbólgumarkmið Seðlabankans miðaði við vísitölu sem innihéldi reiknaða húsaleigu. Ekki aðeins væri óákjósanlegt að Seðlabankinn beitti stýrivöxtum til að hafa hemil á húsnæðisverði heldur hefðu vextir bankans mjög takmörkuð áhrif á húsnæðisverð, m.a. sökum víðtækrar verðtryggingar húsnæðisskulda.

Síðan þessi skýrsla kom út hafa forsendur að sumu leyti breyst, að sumu leyti breyst aftur í þessa átt, ekki síst sú að reiknuð húsaleiga í neysluvísitölunni er nú metin á grundvelli leiguverðs en ekki íbúðaverðs. Það var það sem sá sem hér stendur var að vísa til, í tilvitnuðum texta hv. þingmanns. Breytingar á verðmælingum eru ekki til þess fallnar að hafa veruleg áhrif á lífskjör fólks. Ástæður þess eru þríþættar og um það verður fjallað hér.

Lán sem eru verðtryggð með vísitölu sem undanskilur reiknaða húsaleigu bæru hærri vexti en verðtryggð lán gera í dag. Þar sem höfuðstóll verðtryggðra lána fylgir verðlagi þá bera þau lægri vexti en óverðtryggð lán. Verðtryggð lán bera í reynd raunvexti en óverðtryggð lán bera nafnvexti, þ.e. raunvexti plús verðbólguvæntingar. Ákvarðanir lánveitenda um verðlagningu á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum taka mið af þessu. Það er ekki hægt að stýra greiðslubyrði verðtryggðra lána með því einfaldlega að breyta um verðlagsmælikvarða með því að fjarlægja einstaka liði úr verðmælingunum. Breytingar á verðmælingum hefðu ólíklega afgerandi áhrif á framkvæmd peningastefnunnar. Ákvarðanir um stjórntæki peningastefnunnar eru teknar af peningastefnunefnd sem fer ítarlega yfir þróun og horfur í efnahagslífinu og á fjármálamörkuðum. Peningastefnunefnd horfir á fleiri vísitölur en VNV, þ.e. svokallaða samræmda vísitölu eða neysluvísitölu án húsnæðis, og ýmsar kjarnavísitölur sem Hagstofa Íslands tekur saman og Seðlabankinn og peningastefnunefnd hafa aðgang að, með það fyrir augum að halda verðbólgu við markmið yfir meðallangan tíma, sem er jú aðalmarkmið Seðlabankans. Sem fyrr segir þyrfti frumkvæði að breytingum á verðbólgumarkmiði að koma frá Seðlabankanum sjálfum samkvæmt lögum um bankann.

Síðan ætla ég aðeins að minnast á hringl með verðmælingar sem getur valdið ruglingi og benda á dæmi um slíkt. Af framangreindu og því sem ég er búinn að fara yfir má ráða að breytingar á verðmælingum hafi ólíklega jákvæð áhrif á lífskjör fólks. Hringl með verðmælingar gæti á hinn bóginn valdið ruglingi og haft neikvæð áhrif á lífskjör. Árið 2013 breytti hagstofa Bretlands mælikvarða sínum á verðbólgu vegna ágalla á verðmælingum og í tengslum við skiptin urðu til nokkrar nýjar verðvísitölur. Niðurstaðan varð hins vegar sú að einstaklingar og fyrirtæki notuðu þá vísitölu sem þau könnuðust við, jafnvel þótt sýnt hefði verið fram á að hún væri full af ágöllum. Óþarfahringl með verðmælingar þegar verðbólga er vel yfir markmiði er til þess fallið að draga úr trúverðugleika efnahagsstefnunnar.

Þrátt fyrir töluverða umfjöllun og umfangsmikil skýrsluskrif þá fæst ekki séð að breytingar á verðmælingum hafi afgerandi áhrif á lífskjör fólks og mögulega yrðu þau neikvæð. Umræða um húsnæðisliðinn nær gjarnan flugi þegar misræmi myndast í verðþróun húsnæðis eða húsaleigu og annars verðlags eða þegar vextir eru háir eins og þeir sannarlega eru í dag. Markmiðið virðist vera að auðvelda skuldsetningu með lækkun vaxta, sem ég býst við að hv. þingmaður sé að tala um. Sé það markmiðið er vænlegra að stuðla að stöðugu verðlagi til lengri tíma með ábyrgri og trúverðugri ríkisfjármálastefnu og skynsamlegri umgjörð um kjarasamninga. Veðrið hefði t.d. ekki verið betra í sumar ef við hefðum lagt niður Veðurstofu Íslands. Það er engin styttri leið.

Verðbólgan er á niðurleið. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur plan ríkisstjórnarinnar ábyrgt og nú síðast hækkaði Moody's, eitt af lánshæfisfyrirtækjunum, lánshæfiseinkunn Íslands vegna þess að ríkisfjármálastefnan og efnahagsstefnan er trúverðug. Ég hef sagt það áður og segi það aftur: Þetta er allt að koma.