155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[14:48]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Það er sérkennilegur og séríslenskur liður í vísitölunni sem heitir húsnæðisliður. Þessi liður vegur mjög þungt eins og við þekkjum, sem sjá má af því að vísitalan hækkar um 6% á milli ára en hinn almenni liður, vísitala án húsnæðisliðar, er 3,6%. Verðbólgan væri því minni í dag og vextir lægri ef verð á húsnæði hefði ekki hækkað svona mikið. Nú er það svo að húsnæðisliðurinn hefur hækkað svo mjög sem raun ber vitni ekki síst vegna takmarkaðs lóðaframboðs á höfuðborgarsvæðinu, en Reykjavík er langstærsti húsnæðismarkaðurinn. Og þegar framboð á húsnæði er ekki nægilegt, annar ekki eftirspurn, hækkar verð á íbúðum og þar með þessi liður í vísitölunni. Það er fyrst og fremst svokölluð þéttingarstefna meiri hlutans í Reykjavík sem hefur dregið úr framboði á húsnæði og þar með hækkar verð á húsnæði sem síðan hækkar húsnæðisliðinn í vísitölunni. Stóra markaðssvæðið er náttúrlega að sjálfsögðu Reykjavík. Ef það væri búið að vera nægt framboð á húsnæði í Reykjavík þá væri ekki þessi mikla hækkun upp á 6% og verðbólgan væri lægri. Hún er í dag 6%, en án húsnæðisliðarins er hún 3,6%.

Peningastefnunefnd Seðlabankans getur, ef hún kýs svo, litið fram hjá hækkun á húsnæðisliðnum. Ef leysa á þennan verðbólguvanda þá þurfum við að auka framboð á húsnæði. Við þurfum að gera kjarasamninga skilvirkari og nær því sem þekkist á Norðurlöndum og við þurfum einnig að halda vel á spilunum í ríkisfjármálum. Þetta skiptir allt máli og vinnur allt saman. En það er þessi stefna borgarmeirihlutans í Reykjavík í húsnæðismálum þar sem Samfylkingin, Viðreisn og Píratar hafa setið lengst, sem á stóran þátt í því að fólk á í erfiðleikum vegna hárra vaxta. Það eru fleiri þættir en þessi þáttur skiptir máli. Þessi áralanga stefna er óskynsamleg og hefur valdið tjóni, því miður.