Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.
Forseti. Það er alltaf verið að reyna að kenna einhverjum öðrum um. Það er mjög skýrt í öllum tölum um lóðaframboð á landinu og sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu að það eru fleiri lóðir heldur en hefur verið hægt að byggja á, fleiri en þarf til að uppfylla íbúðaþörf. Þannig að það er ekki lóðaskortur sem er vandamálið. Samtök iðnaðarins segja okkur það. Lóðaskorturinn sem er fyrir einhverja framkvæmdaraðila sem fá ekki lóðir er vegna þess að stóru framkvæmdaraðilarnir taka allar lóðirnar. Það er vandinn, ekki að það sé skortur á lóðum fyrir íbúðir. Svo er meira rugl í þessu. Það er til vísitala án húsnæðisverðs. Ef maður fer á vef Hagstofunnar og flettir upp vísitölu neysluverðs þá er til vísitala án húsnæðisliðar. En það er ástæða fyrir því að sú vísitala er ekki notuð þegar verið er að gera verðtryggða samninga, það er bara af því að hún hentar verr, þetta er lægri prósenta sem þýðir minni gróða fyrir þá sem eru að veita lán. Það er ekki vandamál að húsnæðisliðurinn sé inni í einhverri mælistiku sem Hagstofan sýnir okkur um þróun verðlags almennt séð. Vandinn er að hún sé notuð í lánasamningunum yfirleitt. Það er verðtryggingin sem er vandamálið. Það á að henda henni út um gluggann og brenna hana. Sama með lán með breytilegum vöxtum. Það er gjörsamlega fáránlegt að fólk eigi að taka lán sem bankinn eða sá sem veitir lánið getur bara breytt eftir á, eftir behag. Það er fáránlegt að það séu veitt lán með verðtryggingu sem í rauninni er að mæla sjálfa sig, býr til neikvæðan vítahring og meiri verðbólgu í kjölfarið sem hækkar lánin og það hækkar verðbólguna o.s.frv. Þar er lausnin sem við þurfum að hugsa aðeins um. Við þurfum að hugsa þetta í svona kerfislægum aðgerðum, að það er verðtryggingin sem er vandamál, ekki að það sé húsnæðisliður inni í einhverri vísitölu.