155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[14:53]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þetta er umræða sem hefur verið áhugavert að fylgjast með. Mig langar að byrja á að segja það að það mun ekki breyta verði á húsnæði að taka það út úr vísitölu neysluverðs. Það mun ekki heldur verða nein töfralausn eitt og sér án samhengis við annað, til að mynda þegar kemur að verðbólgunni, eins og hæstv. ráðherra hefur raunar farið ágætlega yfir hér í ræðu sinni, svo og fleiri hv. þingmenn.

Frú forseti. Í mínum huga er verkefnið að ná verðbólgu niður. Verkefnið er líka að tryggja að fólk geti komið sér upp og viðhaldið heimili og búið við húsnæðisöryggi og því vinnum við ekki að með því að slengja fram einhverju sem virkar kannski sem einhvers konar töfralausn á yfirborðinu, eins og mér finnst hér vera lagt til með því að spyrja út í það að taka húsnæðisliðinn út úr neysluvísitölunni. Ég tel að það sem þurfi að gera sé að ráðast í aðgerðir eins og til að mynda þær að koma í veg fyrir að húsnæði þjappist á fárra hendur, vinna að stöðugleika í ríkisfjármálunum en gera það alltaf með þeim hætti að við hugum að samfélaginu okkar sem við eigum saman (Forseti hringir.) og tryggja að sjálfsögðu kjör okkar allra með áherslu á þau sem búa við fátækt og verst skilyrðin.