Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að efna til þessarar sérstöku umræðu og ráðherra fyrir að koma til hennar. Þetta er auðvitað mál sem hefur verið rætt ítrekað hér í þessum sal á þessu kjörtímabili og því síðasta. Það komu fram tillögur í þessa veru á síðasta kjörtímabili og þáverandi hæstv. fjármálaráðherra nálgaðist þær hugmyndir með neikvæðum hætti og á þeim nótum að það væri hætta á því, í ljósi þess hversu mikið húsnæðisverð hafði hækkað á árinu á undan, og væri líklegt að menn misstu af lækkun vísitölunnar á grundvelli lækkunar húsnæðisverðs ef tímapunkturinn yrði rangt valinn. Söguna síðan þá þekkjum við auðvitað öllsömul sem hér erum, húsnæðisverð hefur haldið áfram að hækka sem aldrei fyrr. Það er auðvitað til komið af ákvörðunum sem eru ekki vegna undirliggjandi hækkunarþrýstings hrávöruvísitölu erlendis eða eitthvað þess háttar. Það er fyrst og fremst keyrt áfram af lóðaskorti á höfuðborgarsvæðinu og með hvaða hætti hefur verið þrengt að framboðshlið húsnæðismarkaðarins um árabil. Þetta er marglaga vandamál og það er ekki til ein einföld lausn á því en við þurfum með einum eða öðrum hætti að leggja til atlögu við það allt. Bæði þurfum við að taka á framboðshlið húsnæðismarkaðarins, við þurfum að ryðja úr vegi hindrunum í þeim efnum en við þurfum jafnframt að fara að horfa til þess að vísitalan taki mið af því sem raunverulega er neysla, ekki fjárfestingareignir heimila eins og íbúð til eigin nota er og hvað þá þegar íbúðir til annarra nota en eigin nota eru farnar að setja sérstakan þrýsting á þennan hluta verðbólgumælingar sem nú um stundir er hartnær helmingur þeirrar hækkunar sem viðvarandi er.