155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[14:59]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Vísitalan er ekkert annað en hitamælir sem segir okkur stöðu hagkerfisins. En ekkert annað land á byggðu bóli notar hana til stöðugrar hækkunar en aldrei lækkunar á lánum eins og við gerum á Íslandi. Það er staðreynd að ef vísitalan hefði ekki bein áhrif á verðtryggð lán heimilanna og nú brjálæðislegar vaxtahækkanir Seðlabankans þá myndi það ekki skipta okkur neinu máli hvernig hún væri reiknuð. En auk þess sem Seðlabankinn notar vísitöluna með húsnæðisliðnum til að halda vöxtum í nær fordæmalausum hæðum liggur vandinn fyrst og fremst í því að yfir helmingur landsmanna er með verðtryggð lán sem hækka stöðugt með snjóboltaáhrifum og þar munar gríðarlega miklu um húsnæðisliðinn.

Fyrst verðtryggð lán fyrir neytendur eru leyfileg á Íslandi og fyrst verið er að ýta heimilum landsins í þau með handafli og valdbeitingu þá verður einhver sanngirni að vera í vísitölunni til hagsbóta fyrir fólkið og heimilin. Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi er eins og villta vestrið í dag og ríkisstjórnin verður að taka á sig sína sök fyrir að svona sé komið, því að hún hefur siglt algjörlega sofandi að þessum fyrirsjáanlega feigðarósi. Það voru ekki heimilin sem sigldu þessum málum í strand og það á ekki að setja kostnaðinn vegna klúðurs ríkisstjórnarinnar á herðar þeirra. Um það snýst þetta mál. Húsnæðisliðurinn þarf að fara út úr vísitölunni sem notuð er til útreikninga á verðtryggðum lánum og sem viðmið fyrir vaxtahækkanir Seðlabankans. Það er krafan. En svo geta bæði Hagstofan og aðrir greiningaraðilar notað vísitöluna með húsnæðisliðnum í alls kyns útreikninga að öðru leyti.

Og jú, það þarf að byggja meira, en heimilin geta ekki beðið eftir því. Þau eru þegar komin að og yfir sín þolmörk og ekki með nokkrum hætti réttlætanlegt að níðast meira á þeim. Það er staðreynd að án húsnæðisliðarins er verðbólgan innan vikmarka og markmiða Seðlabankans. Það er einnig staðreynd að háir vextir eru fyrir löngu farnir að hamla uppbyggingu á húsnæðismarkaði á sama tíma og sú uppbygging á að lækka verðbólguna. Hvernig gengur það upp? (Forseti hringir.) Það þarf líka einhver að fara að svara þeirri spurningu hvernig áhrif það hefur á húsnæðismarkaðinn að vaxtapína fólk sem ekki er í neinum fasteignahugleiðingum. Fyrst ríkisstjórnin vill hreykja sér af því (Forseti hringir.) að án húsnæðisliðarins sé verðbólgan ekki nema 3,6% á fólkið í landinu að njóta þess. Með því að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni lækka vextir (Forseti hringir.) og það losnar um snöruna sem er að kæfa heimilin í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)