Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.
Virðulegi forseti. Umræða um verðbólgu, vaxtastig og afborganir lána hefur verið mjög mikil síðustu misserin. Það má velta fyrir sér í þeirri umræðu hvenær ákvarðanir Seðlabankans eru hættar að kæla hagkerfið og komnar meira yfir í að frysta það. Það er a.m.k. komið að frostmarki. Það er mikilvægt fyrir okkur að velta við öllum steinum í umræðunni um efnahagsstöðugleika hér á landi. Kostnaður við húsnæði er vissulega mikilvægur hluti af vísitölu neysluverðs og vegur þungt í einkaneyslu heimila sem vísitölunni er ætlað að mæla verð á. Við lækkum þó ekki verðbólgu með pennastrikinu einu heldur verðum við að stuðla að ábyrgri og trúverðugri stefnu í peningamálum og ríkisfjármálin þurfa að vera traustur grunnur sem byggður er á staðreyndum, skynsemi og trausti. Í skýrslu sem var gefin út árið 2018 um mat á forsendum við útreikning verðtryggingar, vísitölu og verðbólgu voru tilgreindar tvær leiðir sem miðuðu að því að húsnæðisliðurinn í vísitölunni yrði tekinn út. Báðar leiðir voru sagðar eiga sína kosti en einnig fjölmarga galla. Það eru skiptar skoðanir um það hvort verðbólgumarkmið Seðlabankans eigi að miða við vísitölu sem inniheldur húsnæðisliðinn, eins hvaða áhrif ákvarðanir Seðlabankans hafa á verðbólgu og lífskjör fólks. Það verður ekki fram hjá því litið að peningastefnunefnd Seðlabankans telur húsnæði vera mikilvægan þátt í útreikningi á vísitölunni og þrátt fyrir að við myndum ákveða að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs þá myndi það að öllum líkindum hafa lítil áhrif ef Seðlabankinn héldi honum inni í sínum útreikningum. En bankinn er vissulega samkvæmt lögum sjálfstæður í sínum störfum.
Það eru engar töfralausnir. Ábyrg og trúverðug ríkisfjármálastefnan er lykilatriðið.