155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:04]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Vísitölu neysluverðs er ætlað að endurspegla útgjöld heimilanna í landinu. Húsnæðiskostnaður er mjög stór hluti þeirra útgjalda og það má færa rök fyrir því að þess vegna sé hann inni í neysluverðsvísitölunni, rétt eins og hann er hluti af útreikningum verðtryggingarinnar. Vilji hv. þingmenn losna við verðtrygginguna þá þarf að fara að ræða um gjaldmiðilinn en þessi umræða er ekki um hann. Í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra, eins og hér hefur áður komið fram hjá hv. málshefjanda, kom ítrekað fram að án húsnæðisliðarins væri verðbólgan bara 3,6%. Það var auðvitað bara gert til að reyna að kasta ryki í augu almennings en það er auðvitað þannig að venjulegar vinnandi fjölskyldur sem greiða af húsnæðislánum sínum um hver mánaðamót fara ekki varhluta af samspili verðbólgu og vaxtastigs. Það er nefnilega þannig, forseti, að aðgerðaleysi þessarar ríkisstjórnar er orðið að sérstökum skatti á ungt fólk og barnafjölskyldur, skatti í formi ofurvaxta. Það er enn þá spurt á húsnæðismarkaði: Hverra manna ertu?, ef þú vilt komast inn á hann. Svo ber að líta á það, eins og fram hefur komið, að hafi ríkisstjórnir síðastliðins áratugar haft einhvern minnsta áhuga á því að breyta samsetningu neysluverðsvísitölunnar þá voru þær í fullum færum til þess en hafa ekki gert.

Forseti. Við skulum horfast í augu við það að ástæða hárrar verðbólgu og vaxtastigs hér á landi er ekki að leita í samsetningu neysluvísitölunnar heldur hagstjórnarmistökum síðustu ára. Kostnaður þeirra mistaka leggst ekki jafnt á fólkið í landinu og eins og staðan er núna erum við að skilja unga fólkið eftir á köldum klaka hárrar verðbólgu og hárra vaxta.