155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:11]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir gagnlega og góða umræðu hér í dag þar sem ýmislegt hefur komið fram. Hér hefur t.d. verið vísað til þess að húsnæðisliðurinn sé eins og hitamælir í vísitölunni. Ég er hrædd um að þótt við myndum brjóta hitamælinn myndi sjúklingnum ekki endilega batna hratt, þótt við gætum ekki séð raunverulega stöðu. En ég get tekið undir með þeim sem hafa rætt áhyggjur sínar af húsnæðismarkaði. Ég hef af því miklar áhyggjur að við höfum þróast í ákveðna átt sem ég sé mikla galla á og er ég nú að undirbúa þingmál sem ég tel að muni koma til móts við a.m.k. hluta. Mig langar að nefna ákveðna þætti, eins og t.d. að á meðan ungt fólk og einstaklingar fá ekki greiðslumat til að eignast þak yfir höfuðið, er þá allt í lagi að félög eða hinir efnameiri geti safnað að sér fjölda fasteigna, eins og á höfuðborgarsvæðinu þar sem heilu göturnar eru í eigu einhvers eins einstaklings? Ef við horfum til landsbyggðarinnar, við getum horft á staði eins og Siglufjörð eða Seyðisfjörð þar sem stór hluti húsnæðis í bænum er frístundabyggð, þá vantar þar sárlega húsnæði fyrir fjölskyldur en þessi hús standa í myrkri jafnvel hálft árið. Að lokum er það svo staðreynd að til er húsnæði á landsbyggðinni sem er til sölu en bankarnir neita að fjármagna kaup á því af því að það er svo langt frá þéttbýlinu. (Forseti hringir.) Þetta eru t.d. þeir þættir sem koma í veg fyrir að við getum átt eðlilegan húsnæðismarkað, sem er miklu frekar skrefið sem við þurfum að taka (Forseti hringir.) heldur en að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni.