155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:14]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Frú forseti. Við gætum tekið alla liði út úr verðbólgumælingunni og þá væri bara engin verðbólga. Staðreyndin er hins vegar sú að á meðan seðlabankastjóri metur það þannig að það sé spenna í hagkerfinu þá mun seðlabankastjóri eða peningastefnunefnd ekki lækka stýrivexti. Á meðan stýrivextir eru háir þá mun þetta vaxtaokur eiga sér stað, 9,25% stýrivextir plús álag bankanna, 12%, 13%. Ef við myndum bara banna verðbólguna þá kæmi í ljós í hvers lags samfélagi við lifum. Værum við tilbúin til þess að hér væru allir að borga 500–600 þús. kr. á mánuði í afborganir af lánum sínum upp á 50 milljónir? Nei, við værum ekki til í það. Það er kominn tími til að við förum að skoða vandamálið sem við erum að glíma við.

Mig langar, virðulegi forseti, að vitna í viðtal við seðlabankastjóra sumarið 2020 við Fréttablaðið þar sem seðlabankastjóri segir:

„Verðtryggingin var upphaflega sett vegna þess að við réðum ekki við verðbólguna. Núna eru tímarnir breyttir. Í fyrsta sinn er það raunverulegur valkostur fyrir heimilin að skipta yfir í nafnvexti og þannig afnema verðtrygginguna að eigin frumkvæði af sínum lánum. Þetta eru mikil tímamót og fela í sér að verðtryggingin mun deyja út.“

Þetta voru orð seðlabankastjóra í aðdraganda síðustu kosninga. Verðtryggingin mun deyja út. Er það þannig? Höfum við séð verðtrygginguna deyja út? Höfum við séð vextina fara niður? Nei, þeir hafa farið upp. (Forseti hringir.) Þetta er íslenskur veruleiki sem við erum alltaf að sætta okkur við.