155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég held að það hafi endurspeglast nokkuð skýr skilningur á því að það sé ekki hægt að gera eitthvert hókus-pókus með þeim tilgangi að lækka vexti á verðtryggðum lánum. Eins og ég fór yfir í mínu máli og fjölmargir aðrir þingmenn samsinntu var að við þurfum fyrst og fremst að tryggja það að við náum verðbólgunni niður með ábyrgri efnahagsstjórn og peningastefnu sem vinnur að því, sem er aðalmarkmið Seðlabankans, að halda verðbólgu í skefjum. Það er rétt sem hér hefur verið ítrekað að verðbólgan án þessa húsnæðisliðar er komin í 3,6% sem segir okkur að hún er á hraðri leið niður. (Gripið fram í.) Þenslan er að hverfa úr samfélaginu og við getum vænst þess að horfa til bjartari tíma. Verkefnið er, og ég hef ítrekað sagt það hér í þessum ræðustól, að taka betur utan um húsnæðismarkaðinn. Það hefur verið gríðarlega mikið byggt á liðnum árum og ef við horfum á þá spá sem HMS var að birta núna og skoðum þau gögn sem þar liggja undir þá eru alveg horfur á því að á næstu árum verði byggt viðlíka og á árinu 2023. Það er auðvitað þannig að þegar verð á húsnæðismarkaði rýkur upp og er orðið eins hátt og raun ber vitni er það gríðarlegur hvati til þeirra sem vilja byggja og selja þannig að markaðurinn ætti að taka við sér og það er það sem við virðumst sjá ef við rýnum í tölurnar. En það að fara í hókus-pókus aðgerðir til þess eins að lækka vexti gengur ekki upp. Það er einfaldlega ekki leið sem er fær, því miður. Ég held að það hafi verið svolítið samdóma álit hér í þessum ræðustóli í dag.