landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, og lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009, um heilbrigðisskrár o.fl. Frumvarpið er endurflutt frá síðasta löggjafarþingi. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á núgildandi ákvæði laga um landlækni og lýðheilsu um heilbrigðisskrár. Tilgangurinn hér er fyrst og fremst að skýra umgjörðina um heilbrigðisskrár. Í heilbrigðisskrár fara heilbrigðisupplýsingar sem lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga skilgreina sem viðkvæmar persónuupplýsingar. Því þótti og þykir nauðsynlegt að skýra nánar verkefni landlæknis sem snúa að skipulagningu, rekstri og notkun slíkra skráa, skyldu aðila til að miðla upplýsingum í slíkar skrár og heimild landlæknis til að vinna með þessar viðkvæmu upplýsingar.
Það ber að hafa í huga að í heilbrigðisskrár fara engin frumskráð gögn, eingöngu er um afleidd gögn að ræða. Gögn í heilbrigðisskrám eru ekki sérskráð af veitendum heilbrigðisþjónustu heldur liggja þegar fyrir. Með frumvarpinu er ekki verið að gera auknar kröfur um skráningu rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu. Ekki er hér heldur verið að gera frekari kröfur um gagnaskil en áður og þá er heldur ekki um að ræða sérstaka skráningu rekstraraðila í heilbrigðisskrár. Embætti landlæknis hefur komið upp öruggri rafrænni leið til að senda heilbrigðisgögn milli aðila í heilbrigðisþjónustu sem er Hekla heilbrigðisnet, sem er nýtt til að senda gögn í heilbrigðisskrár landlæknis. Áfram verður eingöngu gerð krafa um að tiltekið undirmengi af því sem þegar er skráð með stöðluðum hætti í sjúkraskrár, samkvæmt lögum um sjúkraskrár, verði sent í heilbrigðisskrár landlæknis með rafrænum hætti. Framkvæmdin felur því hvorki í sér kostnaðarauka né aukið vinnuálag fyrir veitendur þjónustunnar.
Heilbrigðisskrár eru lykilgögn í heilbrigðisþjónustu og hefur landlækni verið heimilt að halda slíkar skrár frá setningu fyrstu laga um landlækni, árið 2007. Tilgangur heilbrigðisskráa er að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, auka gæði þjónustunnar og meta árangur af veitingu hennar.
Það má kannski draga þetta saman í þríþættan tilgang eins og gert er ágætlega í greinargerð á bls. 5 og ég vek athygli á, virðulegi forseti. Í fyrsta lagi að setja ítarleg ákvæði um tilgang heilbrigðisskráa, öflun upplýsinga í slíkar skrár, rekstur þeirra og notkun sem grundvöll eftirlits, gæðaþróunar og rannsóknar, m.a. til að bæta þjónustuna. Eins og segir hér, með leyfi forseta:
„Með aukinni þekkingu og nýrri tækni hafa notkunarmöguleikar heilbrigðisskráa orðið fjölbreyttari og talið er nauðsynlegt að lög um landlækni og lýðheilsu endurspegli þá þróun.“
Í öðru lagi er stefnt að því að tryggja lagastoð fyrir stofnun og rekstri slíkra skráa og það er mikilvægt og sérstaklega vil ég draga fram gæðaskrár sem hér er lagðar til af hálfu heilbrigðisstofnana og starfsstofa heilbrigðisstarfsfólks og hefur verið kallað eftir. Gæðaskrár eru samþættar klínísku starfi í heilbrigðisþjónustu og hafa þann tilgang að bæta meðferð, en þær nýtast jafnframt við vísindarannsóknir og við mat á árangri meðferðar.
Ég vil koma inn á það hér, virðulegur forseti, að gæðaskrár eru heimilaðar til að mynda á öðrum Norðurlöndum. Það er mjög mikilvægt til að bæta og efla þjónustu að geta haldið slíkar skrár og ekki síst að geta borið saman við svipaðar meðferðir sem fara fram annars staðar.
Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar er varða aðgang heilbrigðisyfirvalda að sjúkraskrám við meðferð kvörtunar- eða kærumála.
Gögn úr heilbrigðisskrám má einnig nýta til stefnumótunar á sviði heilbrigðismála, við áætlanagerð, gæðaþróun og við framkvæmd vísindarannsókna. Landlæknir vinnur einnig tölfræðiupplýsingar og greiningar úr gögnum skránna og veitir aðgang að þeim upplýsingum. Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisskrár verði nýttar í fjölþættari tilgangi en áður, til að tryggja að til staðar séu aðgengilegar og áreiðanlegar tölfræðiupplýsingar um lýðheilsu við mótun stefnu á sviði heilbrigðismála og þróun heilbrigðisþjónustu. Þá hefur mikil tækniþróun átt sér stað frá því að lög um landlækni og lýðheilsu voru sett árið 2007, og þarf löggjöfin að taka mið af því, eðli máls samkvæmt.
Tækniþróunin hefur líka gert að verkum að unnt er að nýta heilbrigðisskrár enn frekar en áður, en frumvarpið leggur til að stjórnsýslustofnanir eins og t.d. Sjúkratryggingar Íslands, geti nýtt gögn úr heilbrigðisskrám, við t.d. framkvæmd samninga um heilbrigðisþjónustu. Það mun nýtast til að auka gæði þjónustunnar og skilvirkni í þjónustukaupum.
Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisyfirvöldum og veitendum heilbrigðisþjónustu verði heimilt að nýta heilbrigðisskrár við skipulagningu heilbrigðisþjónustu og eftirlit með henni. Aukin áhersla er lögð á gagnadrifna stýringu heilbrigðisþjónustu og með nýrri tækni er hægt að nýta heilbrigðisskrár til að veita heilbrigðisyfirvöldum og veitendum heilbrigðisþjónustu takmarkaðan aðgang að heilbrigðisskrám, svo sem vegna miðlægra biðlista eftir þjónustu og til að mynda fjármögnunarlíkana. Þannig má koma í veg fyrir uppbyggingu gagnagrunna með sömu upplýsingum hjá mismunandi aðilum, til að tryggja vernd viðkvæmra gagna og efla samstarf milli stofnana og rekstraraðila heilbrigðisþjónustu.
Helsta nýnæmi frumvarpsins er tillaga um að heimilt verði að stofna og reka þessar gæðaskrár sem ég kom hér inn á, virðulegur forseti, og það er mikill akkur í því og það er mikið kallað eftir því og verið skrifað um það, m.a. í Læknablaðinu, og veitendur heilbrigðisþjónustu hafa kallað eftir þessari heimild.
Gæðaskráning felst í söfnun og skráningu klínískra gagna á samræmdan hátt til að fylgjast með greiningu og meðferð sjúkdóma eins og t.d. krabbameini og offitu. Þetta yrði mjög mikilvægt skref að taka og ég er sannfærður um að hv. velferðarnefnd fær örugglega umsagnir því tengt. Með gæðaskráningu fæst yfirlit yfir greiningar- og meðferðarferli sjúklinga og fylgst er með sjúklingum að meðferð lokinni. Tilgangurinn er auðvitað alltaf, eins og við erum alltaf að reyna að leggja okkur fram um að gera, að bæta og efla þjónustuna, auka skilvirknina, nýta tæknina til að tryggja betur úrræðin og létta undir mönnun, en sú áskorun er alltaf til staðar, en ekkert síður er tilgangurinn á endanum að bæta lífsgæði. Það er alltaf lokatakmarkið. Hér getum við nýtt tæknina og vísindin til þess þannig að við getum lagt betur mat á árangurinn til að mynda.
Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi er m.a. verið að bregðast við ábendingum frá veitendum heilbrigðisþjónustu um nauðsyn þess að tryggja lagastoð fyrir stofnun og rekstur slíkra skráa.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að landlækni verði veitt heimild til að halda heilbrigðisskrár sem byggjast á gögnum úr reglubundnum heilsufarskönnunum. Hér má sem dæmi nefna könnunina Heilsa og líðan á Íslandi, sem framkvæmd hefur verið á fimm ára fresti frá árinu 2007. Samkvæmt lögum um vísindarannsóknir ber að eyða gögnum vísindarannsókna eða gera þau ópersónugreinanleg að rannsóknartímabili loknu. Í frumvarpinu er lagt til að stofnuð verði ný heilbrigðisskrá þar sem vistuð verði gögn sem aflað er með könnunum á grundvelli upplýsts samþykkis þátttakenda. Þannig verður unnt að varðveita gögnin til framtíðar til að fá yfirsýn yfir þær breytingar sem kunna að verða á heilsufari Íslendinga.
Á hverju ári tekur landlæknir til meðferðar um 100 mál sem krefjast aðgangs að sjúkraskrárgögnum. Um er að ræða mál sem varða mikilvæga hagsmuni sjúklinga og kalla á ítarlega málsmeðferð. Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisyfirvöldum verði heimill aðgangur að rafrænum sjúkraskrám sjúklings við meðferð kvörtunar- eða kærumála og við rannsókn atvika í heilbrigðisþjónustu. Með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu yrði aðgengi landlæknis að sjúkraskrám hvorki breytt né aukið, heldur er eingöngu lagt til að landlækni verði gert heimilt að nýta nútímatækni til þess að flýta málsmeðferð, auka öryggi og draga úr sóun þar sem á við.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem eru til þess fallnar að efla stefnumótun á sviði heilbrigðismála, auka aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum, bæta gæði þjónustunnar og um leið öryggi sjúklinga og lokatakmarkið er að bæta lífsgæði.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir og fjallað um meginatriði frumvarpsins og leyfi mér hér að leggja það til að lokinni 1. umræðu verði málinu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.