landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir góða spurningu. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður vekur hér máls á. Hér er einungis lagt mat á það hvaða fjárhagslegu áhrif verða af þeim breytingum sem lagðar eru til. Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um mat á þeim áhrifum þá mun þetta passa innan ramma, það fjárhagslega umfang sem er fyrir mun nýtast til framkvæmda þessara laga. Hér er einungis um breytt skipulag að ræða, það er verið að draga saman skrár eins og ég fór yfir hér að meginefni til og það mun ekki hafa fjárhagsleg áhrif. Gerð er grein fyrir þessu í greinargerð með frumvarpinu á bls. 8, um mat á áhrifum, og þar stendur, með leyfi forseta: „Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð og/eða eignastöðu.“
Ég skal játa það hér að mér finnst þessi spurning mjög góð og ég mun að sjálfsögðu taka þessa spurningu með mér og kanna þetta. Ég hef áður átt samskipti við hv. þingmann um fjárhagsleg málefni ríkissjóðs og áhrif laga. Mér finnst þetta einmitt tilefni til að kanna hvert er fjárhagslega umfangið og mögulega getur, með breyttu skipulagi og breyttri nálgun, falist í þessu sparnaður.