155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[15:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég spyr aðallega af því að ég einfaldlega trúi því ekki að þetta hafi ekki nein áhrif, það sé enginn metnaður til þess að samantekt ákveðinna skráa, ákveðin samvirkni og meiri rafræn notkun muni ekki leiða til lækkunar á kostnaði. Mér finnst það rosalega óþægilegt því þegar allt kemur til alls þá er það helsta hlutverk þingmanna að greiða atkvæði um fjárlög. Það er stjórnarskrárbundið lagafrumvarp sem skal leggja fram við upphaf hvers þings. Þegar ég er að greiða atkvæði um fjárlög, segja já, sitja hjá eða greiða ekki atkvæði eða segja nei, þá hef ég í raun ekki hugmynd um hvort ég sé að segja já við því að fjármagna þessi lög eða lög um almannatryggingar, lög um þjónustu fatlaðra eða hvað það er. Það kemur á daginn að þótt ráðherrar hafi sagt okkur alls konar sögur um að þetta sé alveg fullfjármagnað þá lendum við bara í vandræðum. Landhelgisgæslan er í stólpavandræðum, lögreglan er undirmönnuð, heilbrigðiskerfið er með fullt af biðlistum fram og til baka. Þá finnst mér skrýtið að ég hafi bara einfaldlega fengið að greiða atkvæði um fjárlög. Mér finnst það einhvern veginn óheiðarleg framkoma gagnvart mér sem þingmanni að mér sé gert að greiða atkvæði um fjárlög án þess að vita fyrir víst hvort sú lögbundna þjónusta sem við samþykkjum í öðrum lögum sé fjármögnuð eða ekki.

Mér fyndist rosalega gott að vita hvort einmitt þetta frumvarp til laga gefi ekki aukið svigrúm, minnki þær fjárheimildir sem þarf til að sinna þessum verkefnum.