landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir mjög góða spurningu. Ég mun taka þessa spurningu með mér í ráðuneytið og ég mun reyna að draga fram með fyrirspurn til embættisins hvaða fjárhagslega umfang má rekja til framkvæmdar á þessu frumvarpi hér. Þetta tengist tvennum lögum sem við ætlum embættinu að framkvæma og það á halda utan um þessar skrár sem koma fram í þessu frumvarpi með tilheyrandi breytingum. Það muni reyna að leggja mat á það hvaða áhrif þessar breytingar hafa á fyrirliggjandi umfang. Það kann að vera sparnaður.
Svo verðum við líka að horfa til þess að stór hluti af þjónustu, ég tala nú ekki um stjórnsýslustofnun sem er raunverulega stoð við klínísku þjónustuna — hér er um að ræða mjög mikilvægan aðila, embætti landlæknis, til að mynda þegar kemur að eftirliti og gæðum heilbrigðisþjónustu sem ber alltaf að huga að og með veitingu starfsleyfa o.s.frv. Við verðum að horfa til þess að launaþátturinn er mjög stór liður og það verður oft einhver skörun og samlegð á því hvað starfsmenn eru að gera þannig að þetta getur stundum orðið flókið. En þetta er mjög áhugavert og þarna held ég að við getum gert betur þegar kemur að allri fjárlagagerð og fjárlagavinnu. En ég vil líka draga það fram, virðulegur forseti, að öll frumvörp og þetta þar með talið, er búið að meta, það er búið að meta jafnréttisáhrif, fjárhagsleg áhrif og alls konar áhrif af frumvarpinu og það hefur farið í gegnum nálarauga fjármálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis.