155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[15:44]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsöguna. Ég ætla líka að þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið hér áðan. Ég ætla að bæta því aðeins við vegna þess að það er kannski einhver munur á mér og hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni að ég tel að það sé ekki nægjanlegt, við mat á áhrifum frumvarpa, að leggja fjárhagslegt mat á það hvaða áhrif það hefur á ríkissjóð. Það er því miður þannig almennt, og það er ekkert bundið við þetta frumvarp, að þegar við erum að kljást við lagasetningu fer lítið fyrir því að lagt sé mat á það hvaða áhrif viðkomandi lagasetning hefur á aðila utan ríkisins, þ.e. hvaða áhrif hún hefur á einstaklinga. Hefur þetta í för með sér lækkun á kostnaði? Verður lífið einfaldara? Verða lífskjörin betri? Er verið að leggja einhverjar aukabyrðar á einstaklinga? Hvaða áhrif hefur þetta á starfsemi fyrirtækja o.s.frv.? Ég hygg að við þurfum einmitt að fara að vinna okkur með skipulegum hætti, þegar við erum hér að fást við lagasetningu, að því að reyna að horfa aðeins víðar og horfa á samfélagið allt en ekki horfa eingöngu á hugsanleg áhrif á ríkissjóð, þó að það sé vissulega nauðsynlegt, og fáir eru duglegri en hv. þm. Björn Leví Gunnarsson að halda okkur við efnið í þeim efnum.

Ég staldraði við greinargerðina þar sem það kemur fram að ekki sé talið að frumvarpið hafi fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð og ekki dreg ég það í efa — auðvitað bind ég vonir við það, líkt og ég veit að hæstv. ráðherra gerir, að sjúkraskrár af þessu tagi muni í framtíðinni leiða til bættrar þjónustu í heilbrigðiskerfinu og einnig skilvirkari þjónustu og þar með lægri kostnaðar; að við förum betur með fjármuni, getum nýtt þá fjármuni í aukna þjónustu o.s.frv. Þetta segir mér hins vegar, vegna þess að ég tel mig vita að það er auðvitað kostnaður við þessar skrár og í raun er það þannig að í 2. gr. þessa frumvarps liggur svarið, þ.e. það eru veitendur heilbrigðisþjónustu sem skulu bera þennan kostnað. Þeir skulu afhenda allar þær upplýsingar sem landlæknir krefur þá um til skrásetningar landlækni að kostnaðarlausu. Það er sem sagt búið að velta þessum kostnaði yfir á veitendur heilbrigðisþjónustu, hverju nafni sem þeir kallast, hvort það er Landspítalinn, hjúkrunarheimili, sjálfstætt starfandi læknar o.s.frv. Það er akkúrat þetta sem ég var að vekja athygli á hér í upphafi, að ég held að við verðum einmitt við lagasetningu að horfa til þess hvaða áhrif hún hefur á ríkissjóð og ekki bara það heldur einnig hvaða áhrif hún hefur almennt á samfélagið, á samkeppnishæfni, á lífskjör almennings, á starfshæfni fyrirtækja o.s.frv.

Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mjög. Ég bý svo vel að sitja í hv. velferðarnefnd sem fær þetta mál til meðferðar og ég hlakka til þeirrar vinnu. Ég vil þó vekja athygli á því að ýmsum öðrum spurningum er ósvarað, m.a. hreinlega um nauðsyn þessa lagafrumvarps, eins og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur raunar bent á í fyrirvörum við þetta frumvarp. En mestu áhyggjur mínar eru þær, og það er það sem ég mun reyna að fá sem bestar upplýsingar um í vinnu nefndarinnar, að mér sýnist að verið sé að veita landlækni allt of víðtækar heimildir til að krefjast gagna, sem leggur síðan þungar byrðar á veitendur heilbrigðisþjónustu og það sé í raun eingöngu undir landlækni sjálfum komið og hann geti ákveðið allt sem hann vill og reynslan er sú að ráðuneytið kvittar síðan upp á alveg óháð því hver situr í heilbrigðisráðuneytinu á hverjum tíma. Þetta er eitt af því sem ég mun vilja fá mjög skýr svör við og ég mun óska eftir því að það verði skoðað alveg sérstaklega af hálfu nefndarinnar hvort ekki verið að þrengja heimildir landlæknis í þessum efnum.

Að öðru leyti ætla ég að bíða með að fjalla um þetta frumvarp nema í nefndinni sjálfri og síðar við 2. umræðu þessa máls ef tilefni verður til.