155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[15:50]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir hans innlegg í þessu máli og ég geri bara sjálfsagðan fyrirvara á málinu. Þannig á 1. umræðan að fara fram. Við eigum að ræða það og leggja til það sem við sjáum þegar við förum yfir frumvörpin þegar þau koma hingað inn; ég hvet hv. velferðarnefnd til að fara yfir það.

Mig langar aðeins að tæpa á því helsta sem hv. þingmaður kom inn á. Ég tek algjörlega undir það með hv. þingmanni sem tengist því andsvari sem ég átti við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson. Af því að ég kom inn á það í framsögunni þá er þetta allt í þeim tilgangi að reka gagnadrifna heilbrigðisþjónustu. Við byggjum ákvarðanir okkar á gögnum og bætum stefnumótun okkar og pössum upp á lagaumgjörðina. Til lengri tíma vitum við að það mun auka skilvirkni, styðja við starfsfólkið okkar í að sinna þjónustunni og draga úr kostnaði og álagi á heilbrigðiskerfið til lengri tíma með bættri ákvarðanatöku. Við erum hins vegar að tala um kostnað að öðrum dómi.

Hv. þingmaður kom inn á auknar kröfur um skráningu rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu miðað við þær kröfur sem nú þegar eru gerðar. Það á ekki að vera. Í frumvarpinu eru ekki gerðar auknar kröfur um skráningu rekstraraðila miðað við núgildandi lög um landlækni. Hér ber að líta til þess að kröfur um skráningu í heilbrigðisþjónustu er fyrst og fremst að finna í lögum um sjúkraskrár. Ég vildi draga athygli að þessu fyrir vinnslu hv. velferðarnefndar og svo voru tvær aðrar ágætisspurningar sem hv. þingmaður kom inn á sem ég skal gera grein fyrir í seinna andsvari.