landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég verð aðeins rólegri þegar hæstv. ráðherra fullyrðir að ekki sé verið að veita landlækni neinar auknar heimildir til að leggja kvaðir á veitendur heilbrigðisþjónustu um skil gagna. Það kann hins vegar að vera að rök séu til þess að auka þurfi kröfur til veitenda heilbrigðisþjónustu varðandi skil gagna og gagnaöflun. Það kann vel að vera. En það getur ekki verið í höndum landlæknis. Það getur ekki verið í höndum eins embættismanns að hafa slíkt vald. Ef hæstv. heilbrigðisráðherra fullvissar mig um að ekki sé verið að gera það þá er ég aðeins rólegri. Ég ætla þá bara að hafa það í huga við vinnu nefndarinnar og þakka kærlega fyrir svarið.
Ég sagði hins vegar líka í ræðu minni, og þar erum við algerlega samstiga, að auðvitað gerir maður sér vonir um það, og ég trúi því staðfastlega, að eftir því sem við vitum meira um heilbrigði fólks, og getum nýtt okkur þau ótrúlegu gögn sem eru til staðar hjá ýmsum aðilum, muni okkur takast betur til við að efla heilbrigðisþjónustu, veita betri heilbrigðisþjónustu á skemmri tíma, og það sem meira er, hún mun kosta minna. Ég er ekki alveg orðinn sannfærður um að þetta sé endilega leiðin en ekki ætla ég að standa í vegi fyrir því ef hæstv. heilbrigðisráðherra er búinn að fullvissa mig um að hann sé ekki að auka valdheimildir eins embættismanns.