landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Forseti. Þetta er að verða dálítið skemmtileg umræða hér og kannski ættum við að efna til sérstakrar umræðu og gera það þannig að ræðutíminn væri ekki tvær mínútur. En það er annað mál. Það sem ég er að segja — og það er alveg kórrétt sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson segir — er að auðvitað þurfum við að velta fyrir okkur hvaða áhrif lögin hafa á samfélagið í heild sinni. Við höfum séð gríðarlegan árangur í því að rafvæða, ef við notum það orð, eins mikið af þjónustu og hægt er. Hv. þingmaður vék hér að skattframtalinu sem varð til þess að einstaklingar þurftu ekki að verja fjölda klukkustunda, jafnvel heilu dögunum, í að ganga frá skattframtali. Nú tekur þetta kannski 10–15 mínútur fyrir líklegast 90% landsmanna. Þeir klukkutímar sem fóru í skattframtalið nýtast þá í gæðastundir, lestur góðra bóka, samveru með börnunum eða jafnvel til að fara í líkamsrækt, þeir sem eru hlynntir slíkri hreyfingu. Það er þjóðfélagslega hagkvæmt. Sparnaðurinn getur verið þar. Og það kann að vera að það sé réttlætanlegt að ríkið leggi út í ákveðinn kostnað, jafnvel verulega mikinn kostnað, til að einfalda líf fólks, gera það ekki jafn flókið og það raunverulega er. Það á auðvitað að vera markmið okkar. Við eigum auðvitað ekki bara að spyrja um kostnað þegar kemur að lagasetningu. Við eigum líka að spyrja okkur: Verður líf okkar einfaldara? Verður líf samborgara okkar einfaldara? Verður einfaldara og auðveldara og skilvirkara að reka fyrirtæki á Íslandi með setningu þessara laga? (Forseti hringir.) Hugsum ekki bara um afkomu ríkisins.