landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Forseti. Þegar ég klára skattframtalið fagna ég því kannski með ísferð, frekar en að fara í líkamsrækt. Sitt sýnist hverjum um hvernig er gott að fagna því að vera búinn að klára það sem áður var ansi góður skjalabunki; ég er nægilega gamall til að hafa upplifað það, það var ekki gaman. Ég lít á þetta út frá störfum okkar hérna sem þingmenn. Við erum að búa til ákveðin lögbundin verkefni. Þá þarf fólk og tæki og tól og ýmislegt svoleiðis til þess að sinna þeim lögbundnu verkefnum. Við þurfum að útvega fjármagn til að sinna þeim verkefnum og það er þessi þröngi rammi fjárlaganna sem við þurfum a.m.k. að sinna. En svo eru hagkerfispælingar sem þarf alltaf að velta fyrir sér. Það er hægt að gera rosalega ódýr lög, fjárheimildalega séð, fjárlagaliðalega séð, sem eru einmitt ekkert nema hausverkur fyrir alla íbúa landsins. Það er því tvímælalaust tilefni til að huga að því samhengi. Ég veit ekki hvort lögin séu nægilega víðtæk nú þegar til þess að kveða nánar á um það, það á að vera ákveðin kostnaðar- og ábatagreining og hagkerfisleg greining á því hvernig ríkið er að passa inn í samfélagið. Ég held að núverandi lög myndu alveg gefa olnbogarými til þess einmitt að krefja stjórnvöld um að skila slíku mati.