155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[16:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. 1. gr. frumvarpsins er áhugaverð að mínu mati en þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Landlæknir skal skipuleggja og halda persónugreinanlegar heilbrigðisskrár …“

Ég veit ekki af hverju landlæknir þarf nauðsynlega að halda utan um persónugreinanlegar heilbrigðisskrár. Mér finnst það kjarnaspurning þegar allt kemur til alls, því að vissulega er landlæknir síðan að veita ýmsar upplýsingar úr þessum heilbrigðisskrám sem eru ópersónugreinanlegar. Jú, vissulega er þetta dulkóðað og ýmislegt svoleiðis, voða fínt og fallegt, en af hverju þarf ríkið og í rauninni landlæknir að halda utan um þessar gríðarlega viðamiklu heilbrigðisskrár um hjarta- og æðasjúkdóma og taugasjúkdóma, krabbameinsskrá, sykursýkisskrá, slysaskrá, atvikaskrá, dánarmeinaskrá, lyfjagagnagrunn, samskiptaskrá, skimunarskrá, hjúkrunarþjónustuskrá og færni- og heilsumatsskrá? Af hverju er ábyrgðin á því að halda utan um upplýsingar hvers og eins ekki á höndum hvers og eins, þ.e. að þegar einstaklingur leitar sér heilbrigðisþjónustu og læknir þarf á upplýsingum að halda veiti viðkomandi aðili leyfi til þess að læknirinn geti nálgast þær heilbrigðisupplýsingar þannig að þær séu ekki geymdar persónugreinanlegar í miðlægum gagnagrunnum, sem við vitum alveg að eru kannski illaðgengilegir en eru alveg aðgengilegir óprúttnum aðilum? Það er ekkert sjaldan sem við lendum í tölvuárásum og það þarf ekkert rosalega mikið til að ná fram svona gagnagíslatöku. Það þarf oft ekki nema einn rangan músarsmell einhvers starfsmanns, merkilegt nokk. Ég held að þessi gögn séu einmitt það viðkvæm að miðlæg geymsla, þrátt fyrir að hún sé dulkóðuð, sé einfaldlega of áhættusöm. Væri mögulegt að útfæra það á annan hátt sem gerir það að verkum að ef gögnum væri einhvern veginn náð nái það einfaldlega bara til einhvers eins eða fárra, af því að gögnunum væri dreift þannig fyrir hönd hvers og eins einstaklings sem veitir leyfi til að nálgast þau? Það er alla vega útfærsluatriði. Ég geri bara smáathugasemd við það að landlæknir skuli skipuleggja og halda persónugreinanlegar heilbrigðisskrár. Ég held að landlæknir ætti að halda utan um þessar ópersónugreinanlegu heilbrigðisskrár og að persónutengingin sé í höndum hvers og eins einstaklings, sem á heilbrigðisgögnin sín þegar allt kemur til alls og getur gefið leyfi samkvæmt beiðni. Ég vek bara athygli á þessu.