landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér finnst þetta góð spurning sem hv. þingmaður veltir upp og eitthvað sem við eigum klárlega að skoða í meðförum velferðarnefndar. Ég velti því þó fyrir mér að nú er einstaklingurinn stundum í þeirri stöðu og þeim aðstæðum, kannski oftar þegar kemur að heilbrigðisþjónustu, að geta ekki veitt þessar upplýsingar, getur hreinlega verið meðvitundarlaus eða af alls konar ástæðum. Þá hljótum við samt að vilja geta fengið bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem völ er á en ekki lenda á vegg vegna þess að ekki er hægt að nálgast upplýsingar um okkur. Mér finnst líklegt að þetta sé atriði sem hv. þingmaður hefur velt fyrir sér í þessu samhengi og langaði þess vegna að nota ræðustólinn til að koma upp í andsvar og spyrja út í þetta. Ég er sammála því að heilbrigðisupplýsingar um okkur eru viðkvæm persónuleg gögn en þær eru líka gögn sem okkur er til hagsbóta að hægt sé að nálgast og vinna með til þess að við fáum bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu.