landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Forseti. Þetta er í rauninni ekkert nýtt og engin nýsköpun í kringum þetta. Til eru fyrirbæri sem virka á þann hátt að ekki sé hægt að fá aðgang að gögnum nema með leyfi og þá eru undanþágutilfelli þegar það er enginn aðstandandi, um meðvitundarleysi er að ræða eða ýmislegt svoleiðis sem kemur í veg fyrir það. Þá er mjög skýrt að það er tilefni til þess að farið sé fram hjá leyfisveitingunni og er þá hægt að skoða nánar hvort tilefni hafi verið til þeirrar valdbeitingar. Ég er í rauninni að benda á að þegar grunnurinn er aðgengilegur og persónugreinanlegur fyrir hvaða tilefni sem er þá sé þar aðgengisáhætta. Ég hef ekki áhyggjur af þessum lið. Hann býr til pínulítið skref aukalega en ætti ekki að tefja neina þjónustu í þeim tilfellum þar sem vissulega er um bráðatilfelli að ræða.