landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ítreka að þetta er eitthvað sem ég tel að við í nefndinni eigum að skoða nánar. Ég er sammála því að það á ekki að vera hægt fyrir nánast hvern sem er að fletta upp í svona skrá. Við höfum líka dæmi um að upplýsingar séu skráðar en það sést alltaf þegar einhver fer inn í grunninn. Ég velti fyrir mér hvort það sé kannski eitthvað sem gæti verið heppilegra í þessu tilfelli, því að sem manneskja sem hefur notað heilbrigðisþjónustu allt of mikið veit ég líka hversu íþyngjandi það er að vera endalaust að segja sjúkrasögu sem maður man ekki alltaf endalaust langt aftur í tímann með alls konar nákvæmnisatriðum. Vissulega getur maður gefið heimild til að því sé flett upp, en ég velti því fyrir mér á hina hliðina hvort það að vera með einhver undantekningarákvæði geti búið til vafaatriði eða hvort það sé bara hreinlegra að það sjáist þegar flett hafi verið upp í þessum gagnagrunni. Í það minnsta stendur eftir hjá mér að því áreiðanlegri sem gögn eru sem eru skráð þá eykur það líkurnar á því að við fáum viðeigandi og rétta heilbrigðisþjónustu þegar við þurfum á henni að halda.