155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[16:19]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir sína framsögu á þessu máli, alla vega í annað sinn ef ég man rétt. Ég kem hingað upp eingöngu til að fara yfir þann fyrirvara sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur sett við málið. Ég vil nefna í byrjun að ég hafði mjög gaman af þessum hugmyndafræðilegu umræðum sem áttu sér stað hérna hjá fyrri ræðumönnum og leyfi mér að vísa sérstaklega í orð hv. þm. Óla Björns Kárasonar hvað það varðar. En ég er hingað komin til þess að fjalla um afmarkaða efnisþætti frumvarpsins sjálfs.

Þingflokkurinn, eins og hefur komið fram, gerir fyrirvara við þetta frumvarp og telur í fyrsta lagi spurningunni ósvarað er varðar nauðsyn þess. Það er kannski svona grunnurinn. Einnig um umfang þeirrar skyldu sem lögð er til með frumvarpinu og einnig veltir þingflokkurinn upp hvort aðrar minna íþyngjandi leiðir séu færar til að ná markmiðum frumvarpsins.

Frumvarpið felur í sér víðtæka heimild landlæknis til að krefjast gagna sem leggur þungar byrðar á veitendur heilbrigðisþjónustu. Þingflokkurinn gerir fyrirvara við að landlæknir fái þær víðtæku heimildir að meta sjálfur hvaða gagna sé krafist af veitendum heilbrigðisþjónustu án nokkurra takmarkana. Telur þingflokkurinn að skýrar þurfi að koma fram til hvers er ætlast með frumvarpinu, þess gætt að ekki sé lengra seilst en þörf er á gagnvart þeim sem skyldan beinist gegn og nægileg rök færð fyrir því að þær kvaðir sem til stendur að setja á stofnanir og fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu séu nauðsynlegar og ekki úr hófi.

Þingflokkurinn gerir einnig sérstakan fyrirvara um þann þátt málsins sem lýtur að kostnaði vegna skráningar gagna. Gæta þarf að því að sú vinna sem felst í afhendingarskyldu gagna til landlæknis verði metin að verðleikum. Í frumvarpinu felst að veitendur heilbrigðisþjónustu munu þurfa að bera kostnað af vinnu við skráningu gagna þar sem skylt er að veita landlækni téðar upplýsingar án endurgjalds en aftur á móti er kveðið á um heimild landlæknis til að innheimta gjald fyrir úrvinnslu og afhendingu gagna. Þar með njóti í raun embættið erfiðis heilbrigðisstofnana og fyrirtækja án þess að gjaldið renni til þeirra sem höfðu hina raunverulegu vinnu með höndum við skráningu og úrvinnslu gagna.

Fleiri eru formlegir fyrirvarar þingflokksins ekki, forseti, en ég vil að auki fá að nefna að þingflokkurinn sýnir því að sjálfsögðu skilning að mikilvægt sé að halda utan um gögn sem tengjast framkvæmd heilbrigðisþjónustu, enda er verið að höndla með heilsu og líf fólks. En það er mikilvægt að tilgangurinn og markmiðið sé skýrt, það sé sannarlega verið að safna gögnum sem skipta máli og nota þau gögn til að meta árangur og gæði veittrar heilbrigðisþjónustu. Í frumvarpinu eru taldar upp fullt af vel hljómandi og vel útlítandi skrám sem vel má vera að séu mikilvægar en það er ekki ásýnd skránna sem skiptir máli heldur gögnin sem eiga að vera í skránum. Það kemur hvergi fram í frumvarpinu hvaða gögn það eru sem eiga að vera í þessum skrám þannig að í raun hefur landlæknir ótakmarkað umboð til þess að óska eftir hvaða gögnum sem er frá veitendum heilbrigðisþjónustu, svo lengi sem hægt er að koma þeim fyrir í þessum nefndu skrám.

Forseti. Hér hef ég stiklað á stóru um þá formlegu fyrirvara um efnisatriði málsins sem þingflokkurinn óskar eftir að verði tekið tillit til við vinnslu málsins í hv. velferðarnefnd. Ég treysti því og raunar veit að hæstv. ráðherra veitir nefndinni aðstoð í þeirri vegferð eins og hans er von og vísa. Ég ítreka að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sýnir því að sjálfsögðu skilning að það sé mikilvægt að halda utan um gögn sem tengjast framkvæmd heilbrigðisþjónustu. Hér erum við eingöngu að benda á að það eru atriði í frumvarpinu þar sem okkur finnst óskýrt hvort nauðsynlegt sé að ganga svo langt og teljum raunar að því sé alls ekki svarað og teljum rétt að nefndin geri það svo að tilgangurinn nái fram að ganga án þess að nokkur beri óþarflega mikinn kostnað af því.