155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[16:25]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir að koma hér upp og gera grein fyrir fyrirvörum sem var búið að flagga við mig. Mér finnst mikilvægt að þetta komi fram í umræðunni og þess vegna kem ég í andsvar við hv. þingmann frekar en að taka saman alla umræðuna. Það eru fjölmargar athugasemdir sem hafa komið fram í 1. umræðu, sem er vel. Nú fer málið til meðferðar og umfjöllunar í hv. velferðarnefnd. Það er mikilvægt í 1. umræðu að fjalla um málið eins og það kemur fyrir og varpa fram öllum mögulegum og ómögulegum spurningum almennt. En ég vil bara árétta það sem ég kom inn á í minni framsögu að með þessu frumvarpi er ekki verið að leggja til útvíkkun á heimild landlæknis til að krefjast gagna frá veitendum heilbrigðisþjónustu. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir því að ráðherra setji reglugerð um þær upplýsingar sem veitendum heilbrigðisþjónustu ber að afhenda. Ég vildi bara koma þessu að. En fyrirvarar eru til að fara betur yfir málið og ég hvet hv. velferðarnefnd til þess.

Ég vil líka árétta að við skulum hafa í huga að hér er ekki um að ræða frumskráð gögn, eingöngu afleidd gögn, og kveðið er á um skyldu til skráningar upplýsinga um sjúklinga og veitta meðferð í lögum um sjúkraskrár. Við erum að tala um ákveðið undirmengi. Hvað varðar þær heimildir sem lagðar eru til í frumvarpinu fyrir landlækni til að innheimta gjald fyrir úrvinnslu og afhendingu gagna úr heilbrigðisskrám þá vil ég líka árétta að embætti landlæknis hefur nú þegar slíka heimild(Forseti hringir.) samkvæmt 7. og 8. mgr. 8. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Það er ekki verið að leggja til nýja heimild hér. Ég tek undir með hv. þingmanni — og það á almennt við í slíkum tilvikum því nú eru það fleiri stofnanir sem hafa slíkar heimildir, ég nefni Hagstofuna og Þjóðskrá — að við verðum alltaf að gæta (Forseti hringir.) meðalhófs þegar við erum að fjalla um slíka gjaldtöku, þ.e. af hálfu stofnana.