155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár.

230. mál
[16:27]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég ætla kannski ekki að reifa þá fyrirvara sem þingflokkurinn setur við málið í annað sinn en leyfi mér bara að endurtaka stuttlega að þingflokkurinn óskar þess og telur eðlilegt vegna umfangs málsins að skoða aðrar minna íþyngjandi leiðir og athuga hvort þær séu færar til að ná markmiðum frumvarpsins á minna íþyngjandi hátt. Það er mikilvægt að tilgangurinn og markmiðið sé skýrt og það skiptir máli að það sé sannarlega verið að safna gögnum sem skipta máli og nota þau gögn til að meta árangur og gæði veittrar heilbrigðisþjónustu. Þetta skiptir máli. Þingflokknum finnst því ekki svarað hvort búið sé að skoða allar mögulegar leiðir til að ná þessu fram með minna íþyngjandi hætti.