sóttvarnalög.
Hæstv. forseti. Ég endurflyt hér frumvarp til nýrra heildarlaga um sóttvarnir sem ætlað er að leysa af hólmi sóttvarnalög, nr. 19/1997. Frumvarpið sem ég mæli hér fyrir legg ég fyrir Alþingi í fjórða sinn.
Þann 18. júní 2021 skipaði þáverandi heilbrigðisráðherra starfshóp sem falið var að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir og skilaði hópurinn mér drögum að frumvarpi þann 1. febrúar 2022. Starfshópinn skipuðu fulltrúar helstu aðila sem hlutverki hafa að gegna þegar kemur að opinberum sóttvarnaráðstöfunum. Í starfshópnum sátu aðilar frá heilbrigðisráðuneytinu, embætti landlæknis, dómsmálaráðuneytinu, sóttvarnalækni, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sóttvarnarráði og embætti ríkislögreglustjóra. Frumvarpið sem ég mæli fyrir hér í dag er samið af fyrrnefndum starfshópi.
Frumvarpið var lagt fram á 152. löggjafarþingi og fór í gegnum eina umræðu á Alþingi en náði ekki fram að ganga. Við umræðuna komu fram sjónarmið um frekari aðkomu þings hvað varðar ákvarðanir sem skerða athafnafrelsi fólks á grundvelli sóttvarnalaga. Enn fremur komu fram ólík sjónarmið um þá aðila sem skipa skuli í farsóttanefnd.
Frumvarpið var endurflutt á 153. löggjafarþingi með minniháttar breytingum frá fyrri framlagningu m.a. í ljósi umsagnar Persónuverndar. Enn fremur var ákvæði um skipan farsóttanefndar breytt, m.a. í ljósi umsagnar sóttvarnalæknis um þörf á fleiri fagaðilum með sérþekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði í nefndinni og umsagnar Sjúkrahússins á Akureyri um að í farsóttanefnd sætu fulltrúar af landsbyggðinni.
Frumvarpið var enn fremur lagt fram á 154. löggjafarþingi í þriðja sinn með minni háttar breytingum en náði heldur ekki fram að ganga. Frumvarpið er nú lagt fram hér í fjórða sinn með breytingum sem stafa aðallega frá ábendingum hv. velferðarnefndar frá liðnu þingi sem komst langt með frumvarpið og þar ber helst að nefna breytingar sem lúta að ákvörðunum ráðherra um sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms um að reglugerðir settar samkvæmt ákvæðinu hafi að hámarki átta vikna gildistíma.
Virðulegi forseti. Með þeim nýju lögum sem má finna í tillögu hér í frumvarpinu er ætlunin að skýra betur þau úrræði sem sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra geta gripið til vegna hættu á farsóttum til eða frá landinu, innan lands og vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum. Markmið lagasetningarinnar er að vernda almannaheill, þ.e. samfélagið og líf og heilsu einstaklinga gegn smitsjúkdómum og annarri vá sem lögin taka til. Einnig er verið að skýra þær heimildir sem stjórnvöld hafa til opinberra sóttvarnaráðstafana í samræmi við kröfur lögmætisreglunnar og lagaáskilnaðarreglna stjórnarskrárinnar, og jafnframt að einfalda og skýra stjórnsýslu sóttvarna.
Gildandi sóttvarnalög eru frá árinu 1997. Töluverðar breytingar voru gerðar á lögunum árið 2021, þar sem nauðsynlegt þótti að skýra ýmis ákvæði laganna um opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af heimsfaraldri Covid-19. Við endurskoðunina var sérstaklega horft til álitsgerðar Páls Hreinssonar sem hann vann að beiðni stjórnvalda og fjallar um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana í ljósi meginreglna stjórnsýsluréttar og mannréttindaákvæða. Endurskoðun ákvæða um stjórnsýslu sóttvarnalaga var ekki á verksviði starfshópsins sem vann að endurskoðuninni. Hópurinn benti engu að síður á að tilefni væri til slíkrar endurskoðunar í tengslum við áformaða heildarendurskoðun laganna þegar sæi fyrir endann á heimsfaraldrinum.
Almennt má segja að gildandi sóttvarnalög hafi reynst okkur vel í heimsfaraldrinum en nú hefur gefist tækifæri til að líta yfir farinn veg og ná örlítilli fjarlægð frá þessum tíma og einfalda og skýra tiltekna þætti í stjórnsýslu sóttvarna og setja heimildir til sóttvarnaráðstafana fram með einfaldari hætti. Það má alveg segja, virðulegi forseti, að við mátti búast að þingið þyrfti tíma og við þyrftum tíma og það þyrfti meiri tíma en eitt þing til að fjalla um þetta mál og ég trúi því að það hafi náð að þroska málið allvel.
Ég ætla nú að rekja helstu atriði frumvarpsins og sjónarmiðin að baki þeim. Í fyrsta lagi er frumvarpinu ætlað að tryggja þau réttindi sem varin eru af stjórnarskrá með því að kveða skýrt á um til hvaða ráðstafana megi grípa til að skerða réttindi, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Þannig er markmiðið að tryggja enn betur að slíkar skerðingar styðjist við viðhlítandi lagaheimild og séu ekki framkvæmdar nema í þágu almannahagsmuna eða til verndar heilsu eða réttindum annarra.
Það er mikilvægt að fram komi að heimildir sóttvarnalaga til skerðingar á réttindum samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu hafa þann tilgang að tryggja líf og heilsu fólks sem eru veigamestu verndarhagsmunir samfélagsins, sem njóta verndar stjórnarskrár og mannréttindasáttmálans. Jafnframt hefur verið talið að á stjórnvöldum hvíli frumkvæðisskylda að stjórnlögum til að bregðast við, til verndar lífi og heilsu fólks, ef ljóst er að bein og fyrirsjáanleg ógn steðji að því.
Í fyrrnefndri álitsgerð Páls Hreinssonar um heimildir til sóttvarnaráðstafana segir, virðulegi forseti, m.a. að opinberar sóttvarnaráðstafanir geti takmarkað mannréttindi sem vernduð eru af mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Í sumum tilvikum sé nægilegt að slíkar takmarkanir styðjist við sett lög svo þær teljist heimilar, en í öðrum tilvikum verði þær að vera í þágu almannahagsmuna, til verndar heilsu eða vegna réttinda annarra svo þær séu heimilar. Að lokum segir að þeir almannahagsmunir að verjast farsóttum til verndar lífi og heilsu manna teljist falla undir þær undanþágur sem kveðið er á um í mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Þar er m.a. vísað til 1. mgr. 67. gr. um frelsissviptingu, einnig takmarkana á friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu sem koma fram í 71. gr. og takmarkana á atvinnufrelsi sem koma fram í 75. gr. stjórnarskrárinnar. Sama megi segja um ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Í öðru lagi, til viðbótar við stjórnarskrárvarin réttindi, er í frumvarpinu lagt til að sett verði sérstakt markmiðsákvæði í sóttvarnalög sem og sérstakt ákvæði um þá sjúkdóma sem lögin taka til. Lögð er til ákveðin stigskipting sjúkdóma, þar sem í fyrsta lagi eru tilteknir smitsjúkdómar, í öðru lagi alvarlegir sjúkdómar og í þriðja lagi samfélagslega hættulegir sjúkdómar. Lagt er til að heimildir stjórnvalda til sóttvarnaráðstafana skuli taka mið af framangreindri stigskiptingu sem er sambærilegt því sem gildir í Danmörku. Þannig megi einungis grípa til veigamestu ráðstafananna þegar um samfélagslega hættulegan sjúkdóm er að ræða.
Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar á stjórnsýslu sóttvarna. Þannig er lagt til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra líkt og landlæknir og aðrir forstöðumenn stofnana og að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna heyri beint undir yfirstjórn ráðherra en ekki landlækni. Enn fremur verði sett á laggirnar nýtt fjölskipað stjórnvald, þ.e. sérstök farsóttanefnd. Hlutverk hennar verði að gera tillögur til ráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegra sjúkdóma og tillögu um skilgreiningu sjúkdóms samkvæmt stigskiptingu laganna, þ.e. hvort sjúkdómur falli undir að vera samfélagslega hættulegur.
Samkvæmt frumvarpinu verður sóttvarnaráð lagt niður og verkefni ráðsins færð til sóttvarnalæknis og farsóttanefndar. Enn fremur er lögð til sérstök heimild sóttvarnalæknis til að kveðja sér til ráðgjafar sérfræðinga vegna þeirra verkefna sem falla undir hlutverk sóttvarnalæknis.
Í fjórða lagi eru hér ýmsar breytingar gerðar frá gildandi lögum á þeim kafla frumvarpsins sem fjallar um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Einstök ákvæði eru brotin upp og framsetning þeirra einfölduð. Jafnframt eru settar tilteknar skorður við tímalengd opinberra sóttvarnaráðstafana.
Síðast en ekki síst er lagt til að aðkoma og eftirlitshlutverk Alþingis að opinberum sóttvarnaráðstöfunum verði styrkt og loks að viðurlagaákvæði laganna verði uppfært í samræmi við löggjafarþróun síðari ára.
Virðulegur forseti. Frá því að málið var lagt fram á síðasta þingi, eins og ég kom inn á, hafa verið gerðar nokkrar breytingar og m.a. á ráðherra að leita annarra sjónarmiða við opinberar sóttvarnaráðstafanir en þeirra sem byggja á læknisfræðilegri þekkingu á smitsjúkdómum. Hér er lagt er upp með að ráðherra njóti jafnframt ráðgjafar þar sem litið er til efnahagslegra sjónarmiða og málefna barna og ungmenna sérstaklega. Rökstuðningur fyrir þessum breytingum er að opinberar sóttvarnaráðstafanir geti gengið á réttindi einstaklinga og hagsmuni fyrirtækja, t.d. með takmörkun á samkomum. Þá séu börn og ungmenni viðkvæmur hópur sem ráðstafanir geta haft mikil áhrif á, t.d. með takmörkunum á skólahaldi og íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Í ákvæðinu segir nú að ráðherra skuli skipa samráðshóp þriggja fulltrúa sem veiti ráðherra ráðgjöf um opinberar sóttvarnaráðstafanir samkvæmt IV. kafla. Ráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður samráðshópsins, ráðherra sem fer með efnahagsmál tilnefnir einn fulltrúa og ráðherra sem fer með málefni barna og ungmenna einn fulltrúa. Þá með það að markmiði að styrkja réttindi málsaðila sem stjórnvaldsákvörðun beinist gegn og hafa verið sviptir frelsi sínu, er nú lögð skylda á sóttvarnalækni að bera ákvörðun um frelsissviptingu aðila sem neitar að hlíta ákvörðun undir dómstóla. Til þess að koma í veg fyrir nánir aðstandendur þurfi að bera vitni er gerð breyting í samræmi við almennar reglur einkamálalaga og sakamálalaga þar sem tilteknir einstaklingar sem eru nákomnir aðila máls geta skorast undan því að gefa vitnaskýrslu.
Að lokum til þess að tryggja betur aðkomu Alþingis að opinberum sóttvarnaráðstöfum hefur verið gerð breyting á 28. gr. frumvarpsins frá síðustu framlagningu. Í breytingunum felst að reglugerð sem sett er á grundvelli 28. gr. frumvarpsins getur að hámarki gilt átta vikur í senn í stað fjögurra. Telji ráðherra þörf á framlengingu reglugerðar sem sett hefur verið á grundvelli ákvæðisins umfram átta vikur skal hann leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um tímabundna heimild til þess. Verði frumvarpið samþykkt á Alþingi er ráðherra heimilt að framlengja reglugerðina fram að því tímamarki sem tilgreint er í lögunum.
Með þessu fyrirkomulagi hefur Alþingi enn meiri aðkomu að sóttvarnaráðstöfunum en þó er þinginu aðeins ætlað að meta hvort aðstæður í samfélaginu séu slíkar að ráðstafanir þurfi að gilda lengur en lögbundið hámark. Alþingi er þannig ekki ætlað að taka afstöðu til sóttvarnaráðstafananna sem slíkra. Þá mun þetta fyrirkomulag einungis taka til þeirra tilvika þegar til stendur að framlengja reglugerð óbreyttri, en ráðherra hefur eftir sem áður heimild til að setja nýja reglugerð, sem er þá ætlað að gilda í átta vikur, í stað þess að fá staðfestingu þingsins á að heimilt sé að framlengja tiltekinni gildandi reglugerð.
Þá er lagt til að ráðherra sé heimilt að framlengja reglugerð um sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms eins og þörf er á komi óviðráðanlegar aðstæður í veg fyrir að Alþingi geti komið saman.
Virðulegi forseti. Ég tók það fram áðan að það má færa fyrir því rök að gildandi sóttvarnalög hafi reynst okkur vel. Ég held líka, ef ég horfi til baka í tímann og deili því með þeim sem eru að hlýða á framsögu mína hér að á sínum tíma sem ég vísaði til, þegar við fórum í saumana á gildandi sóttvarnalögum, að Alþingi hafi brugðist vel við á þeim tíma og breytt því sem var ástæða til og tók líka ákvörðun um að láta stjórnsýslukafla bíða meðan við færum í gegnum þessa tíma, bíða heildarendurskoðunar, og tókum þar vel mið af skýrslu Páls Hreinssonar eins og ég kom inn á.
Í heimsfaraldri Covid-19 má segja að hafi reynt á flesta þætti laganna en eins og ég gat um áðan voru þessar tilteknu breytingar sem við gerðum á þeim á Alþingi 2021, ég met það þannig, mikilvægar og nauðsynlegar. Ég held að við getum alveg viðurkennt, að fenginni reynslu, að beiting sóttvarnalaga hefur víðtæk áhrif á daglegt líf fólksins í landinu og raunar alla þætti samfélagsins, innviði, atvinnulíf, menningarlíf, nánast alla þætti, eins og við fjölluðum um reglubundið í skýrslugjöf heilbrigðisráðherra til þingsins. Ég held að við þurfum líka að hafa hugfast hver markmið sóttvarnalaga eru og hversu mikilvægt það er við slíkar kringumstæður að þau þjóni tilgangi sínum þegar á reynir, þessa frumskyldu að vernda almannaheill, samfélagið og líf og heilsu þeirra einstaklinga sem samfélagið byggja um leið og við metum það í samhengi allra annarra þátta sem eru okkur líka mikilvægir og ég kom inn á. Ég held að það hafi tekist ágætlega til og ég virði það að þetta hafi tekið þennan tíma og tel það ekki eftir mér að leggja frumvarpið fram í fjórða sinn. Ég held að við getum öll sýnt því skilning að þetta mál þurfi ákveðna fjarlægð, það þurfi að fjalla vel um það, það þurfi að þroskast og vonandi erum við komin á þann stað. Ég er sannfærður um að frumvarpið eins og það lítur út með þeim breytingum sem hafa orðið á þessum tíma bæti lögin frá því sem nú er gagnvart þessum þáttum sem ég fjallaði um að meginefni til, virðulegi forseti.
Við skulum jafnframt ávallt hafa hugfast hver markmið sóttvarnalaga eru, eins og ég kom inn á, og alla þessa þætti þegar á reynir, alla þætti samfélagsins, og beiting þeirra gengur í mörgum tilvikum nærri stjórnarskrárvörðum mannréttindum okkar eða getur gert það. Við reyndum það hér í faraldrinum. Hlutverk okkar er að gera löggjöfina sem best úr garði til að tryggja að markmiðum laganna verði sem best náð en jafnframt að ekki sé gengið nær stjórnarskrárvörðum mannréttindum en nauðsyn krefur. Það er þetta jafnvægi sem við reyndum, held ég, að halda í gegnum allan faraldurinn, misjafnlega eftir því hvernig honum vatt fram með mismunandi afbrigðum eins og við reyndum hér reglubundið.
Virðulegi forseti. Ég held ég láti hér staðar numið og hef komið inn á flesta þætti og gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Ég leyfi mér því að leggja til að því verði að lokinni þessari 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.