sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni mikilvægt frumvarp sem snýr að sóttvörnum. Það er byggt á reynslu sem við fengum í heimsfaraldrinum sem skall á okkur með þunga en blessunarlega gátum við haldið honum í skefjum svo að ekki varð meiri skaði, sem óttast var í fyrstu.
Frumvarp þetta er samið af starfshópi sem skipaður var af heilbrigðisráðherra 18. júní 2021 og er nú lagt fram í fjórða sinn. Það var nærri fullrætt í hv. velferðarnefnd í vor en ekki náðist að ljúka því fyrir þinglok. Nú er það lagt fram með þeim breytingum sem meiri hluti velferðarnefndar lagði til og ætti því að ganga hratt og vel fyrir sig núna. Nú hafa verið gerðar breytingar í þá átt og í samræmi við umsagnir og vinnu sem var gerð í vor. Frumvarpið felur í sér styrkingu á sóttvarnaaðgerðum og að skýra betur hlutverk og heimildir sóttvarnayfirvalda. Með þessari lagasetningu tökum við mikilvæg skref í því að búa samfélag okkar betur undir þær ógnir sem smitsjúkdómar og faraldrar geta haft á heilsu og öryggi almennings.
Nú langar mig að taka undir orð hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur þegar hún talar um að það sé hvergi nærri komin niðurstaða í það hvaða áhrif sóttvarnaaðgerðir höfðu á heilsu og líðan fólks í gegnum heimsfaraldurinn. Við verðum sjálfsagt að skrásetja það á næstu árum og sagan kemur jafnvel til með að skrifa það. En það er líka mikilvægt að hafa það meðferðis og við verðum að taka tillit til þess, en svo líka, talandi um mannréttindi, að sóttvarnir geta skert mannréttindi einhverra einstaklinga en aðgerðaleysi getur líka skert mannréttindi. Við tókum eftir því að það var náttúrlega bara svo misjafnt hvernig þetta lagðist á einstaklinga og hópa, viðkvæma hópa aldraðra eða veikra barna og veikra einstaklinga, kröfurnar voru misjafnar í gegnum heimsfaraldurinn hvort við áttum að herða eða minnka. Og við sjáum það t.d. að þetta hefur haft varanleg áhrif á suma hópa eins og kannski eldri borgara sem einangruðust og það var hraðari öldrun og margt sem hægt er að læra af þessu þannig að við verðum að fara varlega.
Hvað varðar það sem hv. þingmenn hafa talað um, vantraust á stjórnvöld í aðgerðunum í gegnum Covid, þá upplifði ég það alls ekki. Það var nú frekar að það væri mikið traust, óvenjulega mikið traust. Maður sá það bara í umræðunni í löndunum í kringum okkur að traust var mikið til íslenskra stjórnvalda í gegnum Covid og þeirra aðgerða eins og þríeykisins t.d. Nú eru liðin fjögur og hálft ár frá upphafi faraldursins. Við getum alltaf séð núna strax hvað við gátum gert betur.
Ef ég sný mér þá að frumvarpinu þá höfum við á undanförnum árum upplifað hversu nauðsynlegt er að hafa skilvirk og skýr sóttvarnakerfi. Heimsfaraldurinn varpaði ljósi á veikleika í alþjóðlegu og innlendu heilbrigðiskerfi þar sem skortur var á samræmdum viðbrögðum, samhæfingu á milli stofnana og hraðari úrvinnslu upplýsinga. Með nýjum sóttvarnalögum munum við tryggja betri samræmingu sóttvarnaaðgerða milli heilsugæslu, spítala, landlæknis og annarra lykilstofnana. Sóttvarnaaðgerðir verða styrktar með því að innleiða skýrari viðbragðsáætlun til að tryggja að yfirvöld séu betur undirbúin þegar nýr faraldur eða ógn kemur upp — þegar og ef, vil ég segja. Það er nauðsynlegt að vernda almenning og tryggja að heilbrigðiskerfið okkar verði ekki yfirbugað og markmið sóttvarnaaðgerða í gegnum heimsfaraldurinn miðaði alltaf að því, sérstaklega á viðkvæmum tíma þegar óvissan er mikil.
Ein af stærstu áskorunum sem staðið er frammi fyrir í sóttvarnaaðgerðum er samhæfing stofnana og deilda. Skýrar heimildir og hlutverk eru lykilatriði í þessu samhengi. Í þessu frumvarpi erum við að tryggja að sóttvarnayfirvöld líkt og embætti landlæknis hafi skýrar leiðbeiningar um hvernig eigi að bregðast við neyðarástandi. Hér er talað um farsóttanefnd sem á að setja á laggirnar sem skili tillögum til ráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegra sjúkdóma. Mér finnst þetta vera mjög góð viðbót. Í samsetningu hennar er gert ráð fyrir að það séu fulltrúar úr öllum heilbrigðisumdæmum landsins og það verði tryggðar samræmdar aðgerðir um allt land. Kannski var það svolítið fálmkennt í upphafi faraldursins hvernig það fór fram en lagaðist nú strax á fyrsta misseri faraldursins.
Við sjáum fyrir okkur betri skipulagningu á því hvernig sóttvarnaráðstafanir eru framkvæmdar með skýrari verkferlum og samskiptum milli ríkisstjórnar og einkaaðila sem taka þátt í faraldursviðbrögðum. Slíkar samræmdar aðgerðir eru nauðsynlegar til að bregðast hratt og skilvirkt við óvæntum ógnum. Eins og við lærðum af Covid-19 geta staðbundnar ráðstafanir og stefnumótun verið óskilvirkar ef ekki er heildræn stefna fyrir landið allt.
Skýrari heimildir sóttvarnayfirvalda eru lykilatriði í lagafrumvarpinu og sóttvarnayfirvöld þurfa að hafa skýrar og vel skilgreindar heimildir til að geta brugðist við faröldrum og öðrum óvæntum smitsjúkdómum án þess að þurfa að bíða eftir langvarandi stjórnvaldsákvörðunum. Þetta frumvarp kveður á um aðgerðir sem geta falið í sér tímabundnar takmarkanir á ferða- og samgöngufrelsi en um leið er lögð áhersla á persónuvernd og vernd grunnréttinda borgaranna.
Í 28. og 29. gr. frumvarpsins er tryggð lýðræðisleg aðkoma Alþingis að langvarandi sóttvarnaaðgerðum. Það hefur verið kallað eftir því og ég held að þetta sé mjög mikilvægt. Ráðherra er heimilt, að fenginni tillögu farsóttanefndar, að setja reglugerð sem kveður á um ónæmisörvanir, skimanir, afkvíun afmarkaðra svæða, sveitarfélaga, landshluta eða landsins alls, lokun skóla, stöðvun atvinnurekstrar eða samgöngubann. Lagt er til að reglugerðir settar af ráðherra hafi í mesta lagi átta vikna gildistíma. Telji ráðherra þörf á framlengingu gildistíma reglugerðar umfram það tímamark skuli ráðherra leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um tímabundna heimild til þess. Ég held að þetta hafi verið það sem okkur vantaði kannski þó að þingheimur í heild sinni held ég að hafi alltaf verið mjög sammála þeim aðgerðum sem voru fram komnar, enda treystum við á það og þær voru aðgerðir sem voru traustsins verðar. En það er mikilvægt að málið sé komið fram núna og það geti farið fram lýðræðisleg umræða um þær ákvarðanir sem teknar verða. Það er mikilvægt að allar sóttvarnaaðgerðir byggist á traustum vísindalegum gögnum og verði framkvæmdar í samræmi við bestu mögulegu ráðleggingar sérfræðinga. Með því að styrkja sóttvarnayfirvöld tryggjum við að þau hafi nauðsynlegar heimildir til að grípa inn í með skilvirkum hætti án þess að tefja fyrir vernd almennings.
Frumvarpið felur einnig í sér mikilvægar breytingar varðandi gagnasöfnun og meðferð persónuupplýsinga í tengslum við sóttvarnir. Í faröldrum er oft nauðsynlegt að safna upplýsingum um einstaklinga til rekja útbreiðslu sjúkdóma og bregðast við þeim. Hins vegar er gríðarlega mikilvægt að þetta ferli fari fram með tilliti til persónuverndar og tryggja að gögnin séu aðeins notuð í því samhengi sem nauðsynlegt er til að vernda heilsu almennings. Lögð er áhersla á gagnsæi og ábyrgð í gagnasöfnun þannig að almenningur geti treyst á að gögn þeirra sé ekki notuð í öðrum tilgangi en sóttvarnaaðgerðum. Með því að setja skýr ákvæði um gagnavernd og öryggi tryggjum við vernd persónuupplýsinga samhliða því að heilbrigðisyfirvöld hafi aðgang að nauðsynlegum upplýsingum.
Eftirlit og ábyrgð eru lykilþættir í nýjum sóttvarnalögum. Það er mikilvægt að yfirvöld sem bera ábyrgð á sóttvörnum hafi skýrar eftirlitsheimildir til að tryggja að allar ráðstafanir séu framkvæmdar með ábyrgum hætti. Þetta felur í sér eftirlit með því að einangrunar- og sóttkvíarreglum sé fylgt, öll gagnasöfnun sé réttmæt og að réttindi borgara séu virt á öllum stigum sóttvarnaaðgerða. Samhliða eftirliti þarf einnig að tryggja að yfirvöld beri ábyrgð á aðgerðum sínum. Með þessu frumvarpi er lagt til að komið verði á fót sjálfstæðu eftirliti til að fylgjast með framkvæmd sóttvarna og að almennur réttur borgarans til að leita réttar síns sé virtur. Hér erum við kannski að nálgast svona einstaka tilfelli sem geta komið upp og ekki kannski einstaka heldur bara þeirra einstaklinga sem telja að það sé brotið á sér og samt að virða það að við þurfum að vernda ákveðna hópa.
Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi erum við að stíga stórt skref í að styrkja sóttvarnir í landinu. Við tryggjum betri samhæfingu milli stofnana, skýrari heimild til sóttvarnayfirvalda og aukna ábyrgð á framkvæmd aðgerða. Við lifum á tímum þar sem smitsjúkdómar geta breiðst hratt út á heimsvísu. Það er á okkar ábyrgð að tryggja að samfélagið sé undirbúið fyrir slíkar ógnir. Því er það mikilvægt að þetta frumvarp nái fram að ganga og stuðla þannig að öflugra heilbrigðiskerfi, betri vernd fyrir almenning og öruggari framtíð.