sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Nú erum við einmitt að gera þær breytingar sem þarf til að þetta sé til grundvallar. Það kom skýrsla nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda í Covid, sem er upp á nærri 500 blaðsíður, sem var til þess að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum og skilaði forsætisráðherra skýrslu sinni 2022 og þessar aðgerðir voru rýndar þannig að ég held að gögn sem liggja til grundvallar þessu frumvarpi — ég held að þetta hafi verið með upplýstum hætti. Eins og ég sagði í ræðu minni þá eru áhrif aðgerða sem farið var í í faraldrinum enn þá að koma fram og munu koma fram á næstu árum, t.d. bara á þau börn sem voru á grunnskólaaldri þá og verða fullorðnir einstaklingar, ég held að þetta geti alveg fylgt þeim. En ég held að við höfum staðið okkur nokkuð vel og ég tel að það sé bara sannað. Það er horft til þess hvað okkur tókst að halda t.d. grunnskólastarfi gangandi í gegnum heimsfaraldurinn. Ég tek sem dæmi að samkomutakmarkanir fóru alveg niður í fimm fyrir vestan og tíu á tímabili en það var samt hægt að halda úti skólastarfi sem ég tel vera mjög mikilvægt. Eins og ég segi er verið að gera breytingar í þessu frumvarpi sem eru einmitt byggðar á rýni, gagnrýni, á aðgerðum í heimsfaraldri.