sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Skýrsluhöfundar umræddrar skýrslu sem hv. þingmaður vísar tóku skýrt fram að þar væri ekki farið í mat á meðalhófi. Ekki var verið að skoða hvernig var staðið að því. Þannig að þó að það sé alveg rétt að það hafi farið fram ákveðin rýni þá sneri hún ekki að því sem ég vísaði til áðan. Síðan er rétt að það tókst nokkuð vel að halda grunnskólastarfi gangandi en það sama átti ekki við um framhaldsskólann og mér þykir mikilvægt að við séum tilbúin að horfast í augu við að mögulega hafi það verið mjög skaðlegt fyrir þessa kynslóð að hafa ekki aðgang að jafningjum sínum og einhvers konar samfélagslegu neti í allan þennan tíma, að komast ekki á busaball, komast ekki nokkurn skapaðan hlut. Ég átta mig á því að það hefði aldrei verið hægt að gera þetta með fullkomnum hætti en mér finnst mikilvægt að við horfumst í augu við að mögulega var ekki rétt að setja framhaldsskólanema í fjarkennslu, svo dæmi sé tekið.
Síðan varðandi það hvernig þetta er unnið. Hv. þingmaður gerir því skóna að með þessu frumvarpi sé í raun verið að bregðast við því sem miður fór. Ég, eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, vil meina að hér sé kannski verið að setja undirstöður undir hluti sem voru gerðir án þess að sérstaklega væri lagaheimild fyrir þeim eins og t.d. að setja fólk á sóttvarnahótel án þess að lagaheimild væri fyrir því á sínum tíma, sem var nú dæmt í. En það sem mér finnst tilfinnanlega vanta er samráð við fólk sem var þolendur þessara aðgerða og með þolendum þá meina ég bara fólk sem varð fyrir þessu vegna þess að ég sé að starfshópurinn sem var skipaður er skipaður fulltrúum úr ráðuneytum og úr lögreglunni. Hann er skipaður gerendunum, og ég er ekki að tala um þetta í einhverjum ofbeldisskilningi, þeim sem framkvæmdu þessar aðgerðir en ekki þeim sem urðu verst fyrir barðinu á þeim. Ég ætla t.d. að benda á að fatlað fólk er ekki nefnt einu nafni í þessu frumvarpi, það er ekkert minnst á það. Það varð alveg sérstaklega fyrir barðinu á sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda (Forseti hringir.) og það er ekkert minnst á það. Þess vegna er svo mikilvægt að fara í sjálfstæða rýni, virðulegur forseti, vegna þess að það þarf að tala við fólk (Forseti hringir.) sem varð fyrir þessum aðgerðum, ekki bara að tala við fólk sem sá um að framkvæma þessar aðgerðir og spyrja: Hvað þurfið þið til að geta framkvæmt þetta betur áfram miðað við hvernig þetta var?