sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er alveg réttmæt ábending. Meðalhófið, ég hef ekki endilega svör við því, en kannski þurfum við að meta hverja aðgerð fyrir sig. Ég held, eins og kom fram í fyrra svari mínu, að áhrif þessara aðgerða séu lengi að koma fram og þetta er bara eins og að lenda, það hafa margir lýst því, í stríði, þetta ástand sem skapast og allt samfélagið er einhvern veginn undir því. En það á sem sagt að spegla alla hópa, ef ég hef lesið í gegnum frumvarpið með réttum gleraugum, og horfa sérstaklega til ákveðinna áhrifa á tiltekinn hluta samfélagsins eða heilbrigðiskerfisins og farsóttanefndin á að horfa á almenn áhrif farsótta og taka til greina ýmis sjónarmið, þ.m.t. t.d. hagsmuni einstaklinga á hjúkrunarheimilum, í grunnskólum eða annarra hópa. En þetta er alveg gríðarlega vandmeðfarið og öll gagnrýni á þetta frumvarp eða þessar aðgerðir er, held ég, réttmæt því við þurfum að horfa á þetta með svo mörgum gleraugum. Meðalhófsmatið, já, ég get alveg tekið undir að það þurfi kannski að rýna það og vonandi verður það gert. Ég hef svo sem ekki annað fyrir mér í því en ég tek undir það. Ég held að við séum kannski núna á þeim stað að við getum horft í baksýnisspegilinn og spurt: Hvaða áhrif virkilega hafði þetta? Við erum bara að sjá í samfélaginu í dag hvaða áhrif þetta hafði.