sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Fyrir okkur liggur frumvarp til nýrra heildarlaga um sóttvarnir og er þetta í fjórða skipti sem það er lagt fram á þinginu og má ætla að það beri vitni um þá miklu vinnu og samráð sem hefur átt sér stað, því að frumvarpið hefur tekið breytingum út frá umsögnum og fleiru í tengslum við umfjöllun þess í nefndum þingsins. Þessi vinna sem hefur átt sér stað er mikilvæg. Við stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum í nútímasamfélagi. Covid-19 faraldurinn sýndi okkur hversu mikilvægt það er að hafa skýr og skilvirk sóttvarnalög, lög sem gera okkur kleift að bregðast hratt og örugglega við farsóttum án þess þó að skerða frelsisréttindi einstaklinga um of. Covid-faraldurinn markaði djúp spor í íslenskt samfélag eins og víða annars staðar. Hann reyndi á okkur öll, bæði sem einstaklinga og þjóð, og í leiðinni sýndi hann fram á mikilvægi þess að hafa skýr og skilvirk sóttvarnalög, lög sem búa okkur undir að takast á við ófyrirséðar aðstæður og verjast ógnum af ýmsum toga.
Núgildandi lög frá 1997 þjónuðu okkur vel í áratugi en faraldurinn leiddi í ljós að þau eru ekki alveg í takti við tímann út frá þeim breytingum sem hafa orðið og við höfum öðlast nýja þekkingu og reynslu, sérstaklega í tengslum við aðgerðir og viðbrögð við Covid-faraldrinum, sem mikilvægt er að endurspeglist í löggjöfinni. Í ljósi þessa alls var mikilvægt að fara í ítarlega skoðun á gildandi lögum og leita leiða til úrbóta. Sú vinna má segja að hafi verið unnin af mikilli fagmennsku, bæði af starfshópi sem skipaður var af heilbrigðisráðherra og af dr. Páli Hreinssyni sem vann ítarlega álitsgerð um valdheimildir stjórnvalda á sviði sóttvarna. Þessar greiningar leiddu í ljós ákveðna ágalla á núgildandi lögum og lagðar voru til úrbætur til að tryggja bæði réttaröryggi einstaklinga og skilvirkni sóttvarna. Frumvarpið sem við fjöllum um í dag byggir einmitt á þeirri vinnu og þeim lærdómi sem við höfum dregið af reynslunni. Það leggur áherslu á skýr markmið, skilvirka stjórnsýslu og aukið lýðræðislegt eftirlit en það tekur einnig mið af alþjóðlegum skuldbindingum okkar.
Varðandi skýr markmið þá kemur fram í frumvarpinu að aðalmarkmið sóttvarnalaga sé að vernda almannaheill, líf og heilsu allra landsmanna. Þetta er ekki síst mikilvægt til þess að auka skilning á tilgangi laganna og tryggja að allar ákvarðanir stjórnvalda séu teknar á grundvelli þessara grundvallarmarkmiða, en auk þess skilgreinir frumvarpið nákvæmlega hvaða sjúkdómar falla undir lögin og hvernig mismunandi stigum sjúkdóma er háttað. Þetta mun auka skýrleikann enn frekar og tryggja að ráðstafanir séu í réttu hlutfalli við þá ógn sem steðjar að. Sérstaklega er mikilvægt að frumvarpið skilgreinir nákvæmlega hvaða sjúkdómar teljast samfélagslega hættulegir. Þetta eru þeir sjúkdómar sem geta haft alvarlegustu afleiðingarnar fyrir samfélagið okkar, bæði hvað varðar heilsufar og efnahagslífið, og með því að skilgreina þessa sjúkdóma sérstaklega gerum við stjórnvöldum einmitt kleift að bregðast við þeim af festu og ákveðni ef nauðsyn krefur.
Einn af lykilþáttum frumvarpsins er einnig aukin aðkoma Alþingis að ákvörðunum um sóttvarnaráðstafanir. Ráðherra verður skyldugur til að upplýsa og rökstyðja ákvarðanir sínar fyrir velferðarnefnd Alþingis, bæði þegar nýjar ráðstafanir eru settar á og eins þegar þær eru hertar. Þetta mun auka gagnsæi og tryggja lýðræðislegt eftirlit með þessum viðkvæma málaflokki.
Í álitsgerð sinni lagði Páll Hreinsson til að skoðað yrði hvort tilgreina ætti sérstaklega í lögunum þá þætti sem ættu að ráða vali á sóttvarnaráðstöfunum. Þetta er mikilvægt atriði sem vert er að skoða nánar, því að þegar gripið er til íþyngjandi ráðstafana er nauðsynlegt að ákvarðanir byggist á skýrum og málefnalegum sjónarmiðum. Með því að setja þessi sjónarmið fram í lögum gerum við það skýrara fyrir almenningi hvernig ákvarðanir eru teknar og aukum réttaröryggi.
Annað sem er mikilvægt og kemur fram í frumvarpinu er að settar eru tímabundnar skorður við því hversu lengi opinberar sóttvarnaaðgerðir geta verið í gildi. Þetta er gert til að tryggja að réttindi einstaklinga séu ekki skert lengur en brýna nauðsyn ber til. Mikilvægt er að við höfum þetta í huga, því að takmarkanir á frelsi manna verða alltaf að vera tímabundnar og í samræmi við þá ógn sem við stöndum frammi fyrir.
Við heildarendurskoðun sóttvarnalaga er mikilvægt að hafa í huga alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, svo sem á grundvelli EES-samningsins og alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar. Þetta frumvarp sem hér er lagt fram, eins og ég sagði áðan, er ekki til komið í tómarúmi heldur er þvert á móti afrakstur ítarlegrar greiningar á reynslu okkar af Covid-faraldrinum og þeim áskorunum sem hann leiddi í ljós. Við höfum lært margt af þessum tímum sem Covid reið yfir. Það er afar mikilvægt að sá lærdómur endurspeglist í lögunum sem lögð eru fram. Sem dæmi, hvað varðar skýr markmið fyrir sóttvarnir eins og ég kom inn á fyrr í máli mínu, þá er ekki nóg að vita að við þurfum að verjast farsóttum, við þurfum líka að vita nákvæmlega hverju við erum að reyna að ná fram. Í frumvarpinu er sérstaklega tekið fram að markmiðið sé að vernda almannaheill, líf og heilsu einstaklinga, gegn smitsjúkdómum. Þetta skýra markmið mun leiðbeina stjórnvöldum við ákvarðanatöku og tryggja að allar ráðstafanir séu teknar með þetta aðalmarkmið að leiðarljósi.
Það er líka fleira sem kemur fram í þessu frumvarpi, m.a. að stofnuð verði sjö manna farsóttanefnd sem mun taka ákvarðanir um sóttvarnaráðstafanir. Í þessari nefnd munu sérfræðingar sitja með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði sóttvarna og það tryggir enn frekar að ákvarðanir séu teknar á sem víðtækustum grunni í samráði við helstu sérfræðinga. Einnig, líkt og ráðherra kom inn á, skerpir þetta hlutverk sóttvarnalæknis.
Varðandi aðkomu Alþingis er komið inn á það að ráðherra sé skyldugur til að upplýsa og rökstyðja ákvarðanir sínar um opinberar sóttvarnaráðstafanir fyrir velferðarnefnd Alþingis og þingið mun einnig hafa möguleika á að kalla eftir frekari upplýsingum og umræðu um málefni. Mikilvægt er að halda þessu til haga. Með þessum breytingum sem er verið að leggja fram í dag erum við að færa íslenska sóttvarnalöggjöf framar, jafnvel framar en hjá mörgum öðrum þjóðum í heiminum. Við erum að læra af reynslunni og búa okkur betur undir framtíðina og það sem koma skal. Frumvarpið er vissulega ekki fullkomið, en ég efast um að nokkur löggjöf sé það og verið er að reyna að tryggja a.m.k. að þetta sé skref í rétta átt og að byggt sé á reynslu af öllum þeim aðgerðum sem lagðar voru til í faraldrinum. Þetta mun m.a. efla öryggi þjóðarinnar og tryggja að við getum brugðist við ógnum af ýmsum toga á skilvirkan og ábyrgan hátt. Jafnframt tryggir frumvarpið að það sé gert með þeim hætti að réttindi og frelsi einstaklinga séu virt. Í þessu felst einmitt kjarni lýðræðisins, að finna þann punkt þar sem almannaheill og einstaklingsfrelsi mætast og skapa þannig samfélag og úrræði þar sem við getum upplifað okkur bæði örugg og frjáls.
Virðulegi forseti. Það er á ábyrgð okkar allra að tryggja að íslensk sóttvarnalög séu í fremstu röð og með því að taka mið af reynslunni, bestu fáanlegu þekkingu og alþjóðlegum skuldbindingum getum við einmitt skapað lagaumhverfi sem er bæði skilvirkt og verndar grundvallarréttindi landsmanna.
Verið hefur svolítil umræða um það að ekki hafi verið farið í nægar úttektir á aðgerðum stjórnvalda í Covid-faraldrinum. Mig langar að nefna nokkrar greiningar sem hefur verið ráðist í og í raun hefur örugglega töluvert meira verið gert en það sem ég tel upp hér. Gerðar hafa verið opinberar greiningar hjá embætti landlæknis, gefnar hafa verið út skýrslur um faraldsfræði Covid-19 á Íslandi, þar á meðal um fjölda smita, dánartíðni og áhrif sóttvarnaaðgerða. Hjá Hagstofu Íslands voru birtar tölfræðilegar upplýsingar um áhrif faraldursins á efnahagslíf og atvinnulíf og hjá velferðarnefnd Alþingis hefur verið farið yfir reynsluna af Covid-19 faraldrinum og lögð fram skýrsla með tillögum að úrbótum á sóttvarnalögum. Einnig hafa greiningar verið gerðar af fræðimönnum og félagasamtökum eins og hjá Háskóla Íslands, en þar hefur fjöldi rannsókna verið gerður á ýmsum þáttum faraldursins, til að mynda áhrifum hans á geðheilsu og félagslegum áhrifum. Samtök atvinnulífsins hafa gefið út skýrslur um áhrif faraldursins á íslenskt atvinnulíf og eins hefur fjöldi sérfræðinga í heilbrigðisvísindum, hagfræði og á öðrum sviðum birt greinar og skýrslur um ýmsa þætti Covid-19 faraldursins á Íslandi. Hæstv. heilbrigðisráðherra nefndi einnig að ríkisendurskoðandi hefði gefið út skýrslur um áhrif á ríkisfjármálin. Líka hafa verið gefnar út skýrslur um mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, lokaskýrsla árið 2023, og eins skýrsla nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda í Covid-19 sem nefnd var áðan.
Það er mikilvægt að hafa í huga í ljósi þessa að enn er verið að vinna úr gögnum og upplýsingum um Covid-19 faraldurinn og við munum eflaust halda þeirri vinnu áfram um ókominn tíma ímynda ég mér. Því er enn of snemmt að draga endanlegar ályktanir um allar afleiðingar hans, en það er ansi mikið komið upp á borðið. Ég fagna þessu frumvarpi sem lagt er fram í dag og bind vonir við að velferðarnefnd taki það til umfjöllunar og ljúki því á faglegan og góðan hátt á þessum þingvetri.