155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sóttvarnalög.

231. mál
[17:43]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra gerði hér grein fyrir frumvarpi til laga um sóttvarnir og að þessari umræðu lokinni munum við í velferðarnefnd fá það til skoðunar. Sóttvarnalög eru kannski, eins og mörg lög sem sett eru eða eru í gildi í samfélaginu, lög sem maður vonar að þurfi ekki að beita í mjög miklum mæli. Reynslan af Covid og svo auðvitað ýmislegt annað sem fjallað er um í þessu frumvarpi hefur sýnt okkur að það er mikilvægt að hafa góð sóttvarnalög.

Ég vildi koma hér upp fyrst og fremst til að gera grein fyrir þeim fyrirvara sem þingflokkur Vinstri grænna gerði við frumvarpið og ég tel mikilvægt að hafa til hliðsjónar í vinnu nefndarinnar. En ég vil byrja á því að segja að ég og raunar við í þingflokki VG teljum að frumvarpið hafi tekið jákvæðum og mikilvægum breytingum frá síðustu framlagningu þess og kannski bara einna beinast að vísa þar til skilgreininga og orðskýringa sem við fengum ábendingar um í vinnu nefndarinnar að gætu verið skýrari. Ég ætla bara að fagna því að hæstv. ráðherra hafi tekið það til sín og sett inn í frumvarpið þannig að það er í frumvarpinu eins og það liggur fyrir núna og ég vona þá auðvitað að það komi annaðhvort engar eða þá jákvæðar umsagnir hvað þann þátt málsins varðar. Þingflokkurinn gerir hins vegar fyrirvara og setur spurningarmerki við það hvort sóttvarnasjónarmið séu nægilega tryggð með frumvarpinu og þá sérstaklega í samspili sumra greina frumvarpsins. Við viljum draga það fram að okkur finnst mikilvægt að í sóttvarnalögum þá þurfi læknisfræðilegt og sóttvarnalegt öryggi að vera í fyrirrúmi og það er þá kannski aðallega í tengslum við 16. og 28. gr. frumvarpsins sem við teljum mikilvægt að skoða þetta í þessu samhengi. En það er vinna sem velferðarnefnd getur farið í ásamt auðvitað fleiri atriðum sem bæði hefur verið bent á hér í þessari umræðu, svo og annað sem mun koma fram í umsögnum um frumvarpið.

Að því sögðu vona ég auðvitað að það muni ekki þurfa að beita sóttvarnalögum í miklum mæli en við vitum það líka að í samfélagi þar sem fólk er á hreyfingu og fer hratt á milli staða þá geta farsóttir breiðst út á skömmum tíma. Við kynntumst því í Covid. Ég vil reyndar meina að við höfum staðið okkur vel sem samfélag þar sem reynt var að grípa til eins lítið íþyngjandi aðgerða og hægt var og beita þeim í skamman tíma og þá frekar að slaka á kerfinu. Til að mynda var aldrei sett hér á útgöngubann eins og í ýmsum öðrum löndum en auðvitað voru áhrifin á samfélagið mikil. Það finnst mér eiginlega bara liggja í hlutarins eðli. Þegar samfélag og heimsbyggðin er að glíma við svona ástand þá eru áhrifin mikil. En svo eru önnur atriði sem eru í þessu frumvarpi og snúa ekki að svona heimsástandi eins og farsóttir á borð við Covid eru og við þurfum auðvitað líka að kafa ofan í þau atriði og skoða hvort þar sé eitthvað sem nánar þurfi að skoða.

Að þessu sögðu treysti ég velferðarnefnd til að kafa ofan í þetta stóra og viðamikla mál og vanda þar til allrar vinnu.