sóttvarnalög.
Herra forseti. Við tökum nú til við að fjalla um og fara í gegnum frumvarp til nýrra laga um sóttvarnir. Það verður ekki nægjanlega undirstrikað hversu mikilvægt er að þessi lög um sóttvarnir séu vel úr garði gerð. Mér fannst á liðnum þingvetri, þegar við vorum að glíma við þetta frumvarp í þriðja sinn, ánægjulegt að vinna með meiri hluta velferðarnefndar og hæstv. heilbrigðisráðherra að reyna að leiða saman og eftir atvikum leiða í jörð ákveðinn ágreining sem hefur verið á milli einstakra þingmanna eða jafnvel stjórnmálaflokka þegar kemur að sóttvörnum. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að við náum nú loks lendingu í þessum málum. Um það verður ekki deilt að ný lög um sóttvarnir eru skynsamari og betri en gildandi sóttvarnalög, en það breytir ekki hinu að enn þá eru ákveðin atriði í þessu frumvarpi sem ég tel, og í raun þingflokkur Sjálfstæðisflokksins einnig, að þurfi að huga að.
Ég vil í fyrsta lagi vekja athygli á því að það kann að vera að við þurfum að skoða 28. gr. aðeins betur til að það verði engum vafa undirorpið að ráðherra beri að leggja fyrir þingið frumvarp um áframhaldandi takmarkanir vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms. Það er gríðarlega mikilvægt að aðkoma Alþingis sé trygg þegar gripið er til aðgerða af þessu tagi. Hér erum við ekki að tala um það þegar gripið er til sóttvarnaaðgerða eða takmarkana í upphafi faraldurs, í upphafi hættuástands sem kann að skapast eða sem menn óttast að kunni að skapast, heldur það þegar menn framlengja þær til lengri tíma en örfárra daga. Þá verðum við að tryggja að aðkoma Alþingis sé með skýrum, skilmerkilegum og skilvirkum hætti. Þetta er það atriði sem helst út af stendur, fyrir utan að ég tel að við þurfum hugsanlega að skoða aðeins betur skilgreiningu í 9. tölulið 4. gr. um hvað telst samfélagslega hættulegur sjúkdómur.
Að þessu sögðu hygg ég að hér sé verið að stíga skynsamlegt skref í sóttvörnum, skynsamlegt skref til að verja almenning þegar og ef til þess kemur að við þurfum að glíma við — guð forði okkur frá því — hættulega sjúkdóma, að þá séu verkfærin til staðar. En það verður líka að tryggja að löggjafinn komi þar að verki.
Ég get ekki lokið þessari ræðu minni öðruvísi en að minna á að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur alltaf verið skýr með það að nauðsynlegt er fyrir okkur að gerð verði úttekt á sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum í ljósi mannréttindaákvæða stjórnarskrárinnar. Þegar ég mælti fyrir þessari þingsályktunartillögu um skipan nefndar þriggja sérfræðinga, þ.e. að ríkisstjórninni yrði falið að skipa slíka nefnd til að gera úttekt á þessum sóttvarnaaðgerðum sem gripið var til og huga að því með hvaða hætti og hvort nægilega var gætt að borgaralegum réttindum hér, þá tók ég líka fram að ég teldi ekki ólíklegt, í rauninni afar líklegt að sú skoðun myndi leiða til þess að það þyrfti hugsanlega að endurskoða einhverjar þær greinar sem við erum að fjalla um þó að lögin hefðu öðlast gildi áður en slík úttekt yrði gerð. Ég hefði að vísu kosið og talið eðlilegra, heppilegra og skynsamlegra fyrir málið í heild sinni að slík úttekt lægi fyrir nú þegar, en við getum ekki alltaf gert hlutina í réttri röð. Það er skynsamlegt og ég hygg, ef ég man rétt — hæstv. ráðherra getur hrist hausinn eða kinkað kolli — að ráðherra hafi lýst yfir stuðningi við hugmyndir um skipan slíkrar nefndar á síðasta þingvetri. Ég hef litið þannig á að ég eigi hauk í horni í þeim efnum og trúi því að það eigi við um alla eða vel flesta þingmenn að þeir reyni að leggja sín lóð á vogarskálarnar þannig að hægt verði að gera þessa úttekt.
Hæstv. forseti. Ég bíð spenntur eftir því að fá að hefjast handa aftur við vinnu þessa frumvarps. Eins og ég segi þá tel ég að það hafi tekið miklum og góðum breytingum frá því það var lagt fram í fyrsta skipti. Ég tek undir með hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur að þær breytingar eru flestar ef ekki allar af hinu góða og ítreka að þetta frumvarp, nái það fram að ganga, er framfaraskref frá gildandi lögum. Ég mun, eins og hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, taka þátt í því af fullum heilindum að afgreiða þetta mál úr velferðarnefnd og hef ekki ástæðu til að ætla annað en að samstarfið við hæstv. heilbrigðisráðherra og hans starfsmenn og alla sérfræðinga sem að málinu koma verði farsælt. Það er mín reynsla.