sóttvarnalög.
Herra forseti. Mig langar bara að koma hér örstutt upp. Það er ekki oft sem ég og hv. þm. Óli Björn Kárason erum mjög sammála í mörgum málum en þegar það gerist er það þess virði að koma hér upp og ræða það. Það er varðandi þetta að við erum hér að setja á ný heildarlög um sóttvarnir sem ég er viss um að hefur verið unnin mikil og góð vinna í að koma saman. En það sem ég sakna, líkt og hv. þingmaður, er að það hafi ekki verið gerð almennileg úttekt á því hvernig við höndluðum heimsfaraldurinn 2020–2021. Það er nú bara þannig í því að díla við hinar ýmsu krísur sem upp geta komið að það er ávallt mjög mikilvægt að við förum í ákveðið lærdómsferli. Þegar við erum að eiga við svona krísu þá gerum við alltaf mistök. Við höfum ekki alltaf allar upplýsingar. Við reynum hins vegar oftast eftir bestu getu að framkvæma hlutina samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum á hverjum tíma en við vitum að það munu alltaf verða einhver mistök. Til þess förum við í þetta lærdómsferli eftir að krísan er yfirstaðin og út frá því getum við dregið lærdóm sem gerir það að verkum að við gerum hlutina betur næst þegar svipuð krísa eða jafnvel önnur krísa bankar á dyrnar hjá okkur með engum fyrirvara. Einhver góður maður orðaði það þannig: Það er allt í lagi að gera mistök svo lengi sem þú lærir af þeim og endurtekur þau ekki. Það eru einmitt þessar úttektir, sem eru mjög þekkt tól innan krísustjórnunarfræðanna, sem eru notaðar til þess að draga fram hvernig við pössum að mistök — eða þurfa jafnvel ekki að vera mistök, bara að við finnum betri leiðir til að gera eitthvað. Við nýtum þær til að bæta hlutina. Einn af þeim sem tók virkan þátt í þessu var góður félagi minn úr björgunarstörfunum í gegnum árin, Víðir Reynisson. Þegar við sögðum öll: treystum Víði, þá sagði hann við okkur: Ég mun gera mistök, en ég mun reyna að laga þau. Ég held að við þurfum að passa okkur að læra þegar við erum með krísur.
Hér erum við að tala um sóttvarnir en við erum að eiga við aðra krísu akkúrat núna, eldana á Reykjanesi. Þar erum við búin að draga ákveðinn lærdóm af því hvernig við höfum verið að sinna Grindvíkingum sem hafa þurft að flýja. Hvað ef við þurfum að gera það sama fyrir fleiri bæjarfélög? Viljum við þá ekki að við höfum dregið fram lærdóminn af því sem við höfum lært í Grindavík og hvernig við höfum verið að eiga við það til að tækla það? Jú. Það sama gildir hérna. Ég veit að planið er að setja ný lög um almannavarnir t.d. Ég vona að lærdómurinn frá Grindavík og annað verði notað í það.
Ég myndi vilja að við reyndum kannski að bæta verklagið svolítið hjá okkur og vera óhræddari við að fara í svona úttektir. Úttektirnar eru ekki til að hengja hæstv. ráðherra upp og segja: Ja, þar tók nú hæstv. ráðherra ranga ákvörðun, vegna þess að ég er viss um að hæstv. ráðherra tók allar ákvarðanir út frá bestu upplýsingum á hverjum tíma. Það sem skiptir máli er ekki hvort ráðherra hafi gert eitthvað þar sem síðar kom í ljós að hefði verið hægt að taka betri ákvörðun. Eins og málshátturinn segir: Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Við eigum ekki að nota það sem slíkt heldur eigum við að nota það til þess að læra vegna þess að sem manneskjur þurfum við ávallt að læra og þroskast og finna út úr því hvernig við getum gert hlutina enn betur næst þegar krísa kemur.
Þessi sóttvarnalög eru skrifuð eftir að við þurftum að eiga við Covid-faraldurinn. Það var þriðji faraldurinn sem ég átti við í mínu starfi. Fyrsti var svínaflensan 2008 og síðan ebólufaraldurinn 2014–2015. Það var margt sem við lærðum af þessum tveimur faröldrum sem síðan var hægt að nýta í starfinu þegar heimsfaraldurinn gekk yfir 2020. Reynum því endilega að vinna meira þannig að við gerum úttektir á hlutunum áður en við förum í heildarendurskoðun á lögum.