155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sóttvarnalög.

231. mál
[18:12]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þessa þörfu ábendingu og brýningu þar sem hann tekur undir sitthvað af því sem Óli Björn Kárason nefndi. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að slík úttekt gæti reynst ríkinu sjálfu fjárhagslega hættuleg, hvort það kynnu að hellast yfir okkur kröfur frá þeim sem teldu að þeir hefðu ranglega verið skikkaðir til þessa eða hins og hvort ríkið yrði þar með sett í mjög erfiða stöðu, hvort við þyrftum e.t.v. að huga að því að lykilpersónum Covid-tímabilsins yrði komið í var eða að þær skipti um vettvang áður en slík úttekt yrði gerð.