sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir andsvarið. Það er nú þannig með úttektir og annað að þær geta að sjálfsögðu varpað ljósi á eitthvað sem betur hefði mátt fara. Það var samt þannig í þessu ferli öllu saman, þó svo að ég hafi byrjað á þingi undir lok þessa tímabils, að það var allt saman gert í samvinnu við Alþingi. Þegar breyta þurfti lögum þá breyttum við lögum. Þegar hlutir voru gerðir þá var unnið í því og passað að það væru lagastoðir undir þessu. Ef við gerðum mistök í lagasetningu eða brutum í bága við einhverja alþjóðlega sáttmála eða stjórnarskrána þá held ég að úttektin skipti nú litlu máli ef einhverjir vilja fara í mál við ríkið. En við þurfum að vera óhrædd við að varpa ljósi á hvað hefði mátt betur fara. Við megum ekki bara hugsa: Þá gætum við skapað okkur skaðabótakröfur. Ef við gerðum það ávallt myndum við aldrei læra neitt. Það er einmitt lærdómurinn sem skiptir mestu máli í þessu sambandi.