sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir sín viðbrögð við minni spurningu. Ég myndi styðja það heils hugar að við létum gera úttektir á sem flestum þáttum málsins en ég veit líka fullvel að ýmsir af þeim sem gagnrýna og draga í efa að rétt hafi verið staðið að málum eru með málshöfðanir í bígerð. Það hafa verið birtar ansi skuggalegar tölur, meira að segja af landlæknisembættinu sjálfu. Ég bendi á grein í síðasta mánuði eftir Þorgeir Eyjólfsson, forsvarsmann Lífeyrissjóðs verslunarmanna til margra áratuga, sem hefur verið einn af þeim sem mest hafa gagnrýnt allt sem hér var gert tengt faraldrinum. Þar koma fram skuggalegar tölur um aukningu á andlátum, aukningu á sjúkdómum eins og krabbameini, hjartasjúkdómum, hjartabólgu. Það eru tölur á bilinu 15–20% sem þar koma fyrir. Auðvitað þurfum við að rannsaka þetta og kanna til hlítar hvaða eftiráhrif, hvaða orkuskerðandi þættir kunna að hafa komið til með sprautunum, með því að vera að fikta í RNA-inu, næsta bæ við DNA-ið. En ég er nokkuð viss um að um leið og við förum í þá vegferð og fáum þær niðurstöður verða þær vopn í höndum þeirra sem ætla að ná sér í bætur og peninga frá okkur skattgreiðendum.