155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sóttvarnalög.

231. mál
[18:17]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir seinna andsvarið. Ég held að það sé mikilvægt að skilja tvo hluti að. Annars vegar er það hvernig við tókum á þessu stjórnsýslulega og hvernig við settum lög og hvernig við skipulögðum okkar viðbragð og hvernig hlutir voru gerðir. Það er eitt í mínum huga. Læknisfræðilegi hlutinn — átti að láta fólk vera 3 metra í burtu eða 2 metra í burtu? Áttum við að bólusetja fólk eða ekki bólusetja fólk? Ég held að það verði nægt efni fyrir doktorsnema í heilbrigðisfræðum næstu 20 árin. Ég var ekki að tala um slíkar skýrslur. Ég var ekki að tala um að skoða hvort eitthvað væri þannig lagað séð læknisfræðilega rétt eða ekki með bólusetningar eða annað, heldur var ég meira að horfa á þetta sem við ræðum hér. Í þessum nýju sóttvarnalögum erum við ekki að taka læknisfræðilegar ákvarðanir. Við erum að taka lögfræðilegar og stjórnsýslulegar ákvarðanir og ég hefði viljað sjá okkur rýna þann part betur áður en við förum í að breyta allri löggjöfinni, af því að síst af öllu vil ég að við samþykkjum hér sóttvarnalög og fáum svo að vita eftir sex mánuði: Æ, já, það hefði nú kannski verið betra að gera þetta miðað við lærdóminn frá 2020.

En ég treysti því að hv. velferðarnefnd fari vel í gegnum þetta frumvarp og að ráðuneytið og hæstv. ráðherrar vinni með nefndinni í því.