155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sóttvarnalög.

231. mál
[18:19]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Herra forseti. Ég vil koma hér í lok umræðunnar og þakka fyrir fjölmörg góð innlegg. Þau hafa öll dregið fram hversu víðfeðmt þetta svið er og hversu djúpstætt þetta er í okkar huga frá þessum erfiða tíma sem við upplifðum öll. Hér hefur líka verið komið inn á sjálfstæða skoðun og rannsókn, m.a. af tveimur síðustu ræðumönnum, hv. þingmönnum Jakobi Magnússyni og Gísla Rafni Ólafssyni. Fleiri hv. þingmenn hafa komið inn á þetta og rætt þetta; hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, hv. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og hv. þm. Óli Björn Kárason. Um það vil ég bara segja að fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar og munu verða gerðar.

Hér hefur verið kallað eftir óháðri rannsókn, virðulegi forseti, og ég vil draga athyglina sérstaklega að skýrslu nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda. Þetta er 400–500 blaðsíðna skýrsla. Hún er vönduð á margan hátt og hún dregur svolítið fram þennan samanburð sem við höfum líka erlendis frá. Þessi veira virti engin landamæri, þetta var alheimsfaraldur og dauðsföll af völdum faraldursins, í þeirri alþjóðlegu mælieiningu, voru færri hér en víðast gerðist. Þátttaka í bólusetningum var góð, það var nokkuð góð samstaða um þær sóttvarnaráðstafanir sem farið var í og í gegnum faraldurinn treystu landsmenn yfirvöldum samanborið við víða annars staðar.

Ég rifja nú bara upp hér og segi beint frá hjartanu frá störfum Alþingis í þennan tíma. Það voru allir að gera sitt allra besta alls staðar í þjóðfélaginu. Við munum eftir þríeykinu. Af því að við erum m.a. að ræða breytingu á stjórnsýslukaflanum eftir heildarendurskoðun á sóttvarnalögum þá var tekin meðvituð ákvörðun um að fylgja faglegum fyrirmælum í fullkominni óvissu og það ríkti almennt traust gagnvart þeim ákvörðunum sem áttu rætur að rekja til embættis landlæknis og sóttvarnalæknis, sem í gildandi lögum er þar undir í stjórnskipulaginu og var það þá. Ákvarðanatakan var því tiltölulega hröð. Það þótti kostur hér og það þykir kostur þegar við erum að ræða þetta í alþjóðlegu samhengi.

Ég vil líka þakka hv. þm. Jakobi Magnússyni fyrir að drepa á atriðum sem eru í umræðunni og manni ber að virða allar skoðanir sem koma fram. Ég held að það eigi eftir að skoða þetta tímabil með stækkunargleri á alls konar mælikvarða. Ég vil segja um það sem snýr að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og reglugerð sem þeir sem taka þátt í því starfi eiga samvinnu um að þetta er vissulega lagt fyrir hvert þing og það er enginn skuldbundinn af þeim reglum öðruvísi en að Alþingi ákveði það.

Ég vil hins vegar minna á hlutverk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem er sérstök stofnun hjá Sameinuðu þjóðunum frá 1948. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur það hlutverk að samræma aðgerðir gegn ýmiss konar pestum og óáran og faröldrum. Við hefðum ekki viljað vera án þeirra samræmdu aðgerða og alþjóðlegu samvinnu þegar kemur að alnæmi, malaríu, berklum, ebólu eða heimsfaraldrinum. Ég gæti talið upp miklu fleira, þetta snýr líka að sýklalyfjaónæmi, ýmiss konar lýðheilsu sem virðir engin landamæri, þegar kemur að vímuefnum o.s.frv. Þannig að já, ég held að við ættum að horfa þannig á það.

En ég ítreka það og hef sagt það áður úr þessum ræðustól — og hv. þm. Jakob Magnússon hefur einmitt rætt þessa hluti og hlustað í þessu samhengi á sjónarmið um bólusetningarnar þar sem ákvarðanir hafa verið tortryggðar. Og það er í lagi. Það er bara allt í lagi að tortryggja og spyrja og leggja fram og svo verðum við bara að skoða málin og reyna að draga hið rétta fram. Ég mun hins vegar aldrei hvika frá þeirri skoðun minni að allir voru að reyna að gera sitt besta og vinna af heilindum að því að tryggja hér almannaheill og verja líf og heilsu við mikla óvissu í byrjun en mikið samráð, m.a. við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og aðrar þjóðir, og voru að hlusta og læra hratt af lyfjageiranum þar sem allir voru að reyna að finna bóluefni hraðar. Það var alltaf sami tilgangurinn og mér fannst það hugarfar einkennandi.

Eftir því sem tímar liðu og við lærðum meira á þetta þá auðvitað rofnaði aðeins samstaðan og fólk fór að hafa sjálfstæðar skoðanir á þessu og kannski voru ekki jafn skýr skil á milli þess sem við tölum um sem afleiðingar harðra sóttvarnaráðstafana — lengi vel og eiginlega allan tímann, má segja, þurftum við, fámenn þjóð með tiltölulega lítið heilbrigðiskerfi þar sem ekki er hægt að dreifa mjög álagi, að verjast því að heilbrigðiskerfið myndi yfirfyllast, að það gæti sinnt þeim sem þurftu á því að halda að koma inn og jafnvel í verstu dæmum fara á gjörgæslu og í öndunarvél og áttu mjög erfitt vegna þess að þetta lagðist þungt á öndunarfærin og gat bara farið illa eins og við þekkjum. Það eru svo ofsalega margir vinklar á þessu og mér fannst það bara koma ágætlega fram hér í umræðunni.

Ég man að alþjóðastofnanir hvöttu til þess að það væri lagt mat jöfnum höndum á allar fjárhagslegar ráðstafanir og allar ráðstafanir sem höfðu áhrif á mannréttindi og stjórnarskrárvarin réttindi og meðalhóf og jafnræði, sem hefur mikið verið rætt hér í dag. Það var reynt að gera það og m.a. var Ríkisendurskoðun með reglubundnar skýrslur um fjárhagslegar ráðstafanir. Við ákváðum að fara með það í gegnum fjáraukalög, vera ekki að safna saman í ein stór fjáraukalög heldur hafa það bara reglubundið, þannig að þetta voru einhver sex, sjö fjárlög á einu ári þar sem var reynt að styðja við fyrirtæki og stofnanir og samfélagið þar sem á þurfti að halda, þar sem þurfti að loka og tekjustraumar stöðvuðust o.s.frv. Þetta var auðvitað allt saman mjög óvænt og mjög hratt og erfitt að ráða í þetta frá degi til dags en allir voru að gera sitt besta. Við munum alveg umræðuna hér í þingsal um að gera meira en minna þar sem óvissan væri þetta mikil. Ég held að það hafi nú alveg staðist. Við gleymum því oft þegar við ræðum efnahagslegu áhrifin í framhaldinu, mikið peningamagn í umferð o.s.frv.

Vissulega snúið og ég held að þegar tímar líða — og hér komu þingmenn, m.a. hv. þm. Jakob Magnússon, inn á þessar heilsufarslegu afleiðingar og þá vil ég draga fram mjög fallegan viðburð sem við áttum í sumar fyrir norðan með Sjúkrahúsinu á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands þar sem við stofnsettum að frumkvæði þeirra Akureyrarklíníkina sem á rætur að rekja til akureyrarveikinnar sem kom upp í heimavist menntaskólans. Það var við hæfi að halda þennan viðburð og formlega stofnun í Menntaskólanum á Akureyri, mjög fallegur viðburður. En þetta er svona síþreytumerki og er erfitt að greina. Það eru vísbendingar um að heilsufarslegar afleiðingar lýsi sér með svipuðum hætti í grunninn, þannig að við erum alla vega búin að búa okkur undir það. Ég veit að fleiri endurhæfingarstofnanir — Reykjalundur hefur verið að taka á móti og finna út hvað virkar og hvernig er hægt að bregðast við og styðja fólk í að ná aftur fyrri styrk.

Ég vil síðan draga það fram, af því að hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fór hér yfir viðkvæmu hópana, hv. þm. Björn Leví Gunnarsson gerði það jafnframt og fleiri þingmenn hér, að starfshópurinn leggur á það áherslu, og það kemur fram í greinargerð og athugasemdum í samráði, að við getum rætt um viðkvæmu hópana, að við þekkjum umræðuna um hjúkrunarheimilin og eldra fólk, um börn, unglinga og fatlað fólk en að vera kannski ekki að ræða tiltekna hópa heldur nái þetta til allra. En við verðum alltaf að vera tilbúin til þess, og ég vísa til farsóttanefndar og breiðrar skírskotunar og fjölskipaðs stjórnvalds, að meta kringumstæður hverju sinni og taka sérstakt tillit til þeirra viðkvæmu hópa sem um ræðir hverju sinni. Við vitum raunverulega ekkert hvað skellur á okkur næst. Við lærðum mikið, tel ég, af þessum faraldri. Mann hefði ekki órað fyrir því að eiga eftir að upplifa slíka tíma, slík víðtæk áhrif á samfélagið.

Bara í lokin, virðulegi forseti, þá hefur hv. velferðarnefnd tekið þetta mál í fjórða sinn núna og komið með ágætistillögur og þingið hefur komið með ágætistillögur. Umræðan hér í dag dregur það bara ágætlega fram. Hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir sem á sæti í hv. velferðarnefnd hefur komið inn á nokkur þeirra. Mér fannst hv. þingmenn Halla Signý Kristjánsdóttir og Ingibjörg Isaksen gera það jafnframt. Þær fóru inn á þessi atriði og mér finnst það mikilvægt. Ég veit að hv. velferðarnefnd tekur vel við þessu máli og er meðvituð um þessar breytingar og tekur tillit til þeirrar umræðu sem fór fram hér í dag og bætir mögulega við. Ég held að við þurfum stöðugt að meta þessi lög. Það kann vel að vera að það þurfi að fara fram einhvers konar óháð rannsókn sem getur þá nýtt fyrirliggjandi rannsóknir og rannsóknargögn til að setja þá einhvers konar mælieiningu á bak við. Meðalhófið er mjög góður bakgrunnur fyrir það að meta þessar ákvarðanir sem við tókum, oft á tíðum við mikla óvissu en vissulega fylgdum við bara faglegum fyrirmælum þeirra sem gerst þekkja í farsóttafræðunum.

Ég ítreka þakkir hér í lokin, virðulegi forseti, og tek undir með hv. þingmönnum hér og veit að við munum eiga góða samvinnu í þinginu og við hagsmunaaðila í umfjöllun hv. velferðarnefndar.