sjávarútvegsstefna til ársins 2040.
Herra forseti. Svo ég taki af öll tvímæli hvað það varðar þá virði ég hæstv. ráðherra mikils og ég er ekki að halda því fram hér að Vinstri grænir séu í þessum sporum vegna þess að hún hafi ráðið för og það verður bara að segjast eins og er að þau litlu hænuskref sem flokkurinn hefur tekið á síðasta sumri voru tekin undir hennar forystu. En það er samt sem áður ekki hægt að líta fram hjá því að hún kemur hér með þéttskrifaða stefnu þar sem er ekki að finna stafkrók, hæstv. forseti, sem má rekja til stefnu Vinstri grænna sem var borin upp fyrir kjósendur 2021. Mér finnst það alvarlegt. Mér finnst það alvarlegt í rauninni fyrir framboð Vinstri grænna að sú sem hefur kannski klúðrað þessu máli svona hrikalega, eins og ég mun rekja í ræðu minni hér á eftir, stefnir á að leiða þessa stjórnmálahreyfingu áfram. Við megum ekki gleyma því að það eru gríðarleg tækifæri í sjávarútveginum vegna þess að núverandi ráðgjöf hefur ekki skilað tilætluðum árangri heldur er aflinn minni í nánast hverri og einni einustu tegund sem hefur lent inni í þessari stjórn. Ég hvet hæstv. ráðherra að fara eilítið yfir fyrirspurn sem hv. þm. Inga Sæland lagði fram og fékk svör við. Þar kom þetta skýrt fram. Hver og ein einasta tegund sem er kvótasett, sem hefur farið inn í þetta kerfi sem virðist ekki mega anda á fyrir nokkrum auðmönnum — þetta bara stenst enga skoðun. Það eru tækifæri fyrir alla í greininni og ég bara skora á ráðherra að fara betur yfir málin og taka þeim ábendingum sem fram koma hér af hálfu Flokks fólksins vel því þær eru vel meintar, ekki síst fyrir hennar heimabæ, Ólafsfjörð.