sjávarútvegsstefna til ársins 2040.
Herra forseti. Ég vil bara halda því til haga svo það sé sagt að gildin sem hér eru undir eru sjálfbærni, hagkvæmni, fyrirsjáanleiki og gagnsæi. Það er allt saman samkvæmt stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Vöktun og viðbrögð við breytingum lífríkisins, að auka þekkingu á hafinu með rannsóknum og menntun, hagkvæmni og verðmætasköpun, jafnrétti, fæðu- og matvælaöryggi o.s.frv. — þetta harmónerar allt saman við stefnu Vinstri grænna þannig að ég átta mig ekki alveg á því hvernig þingmaðurinn fær það út að það sé ekki hér undir, þegar meginmarkmið þessarar stefnu byggja á sjálfbærri þróun, umhverfi, efnahag og samfélagi. Mér er það algjörlega óskiljanlegt því það er sannarlega þannig að þetta er rauður þráður í gegnum alla stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, akkúrat þessir þættir sem snúa að umhverfinu, sjálfbærri þróun, náttúruvernd o.s.frv. og þar undir er auðvitað lífríkið í hafinu og vistkerfi. Þannig að ég ætla bara að leyfa mér að halda því fram að þessi stefna sem hér liggur undir passar fullkomlega inn í okkar hreyfingu og ég vona svo sannarlega að hún nái fram að ganga og við getum afgreitt hana hér fyrir jólin.