155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sjávarútvegsstefna til ársins 2040.

233. mál
[18:50]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er margt fínt í þessari stefnu og hún undirstrikar mikilvægi sjávarútvegsins og líka fiskeldisins fyrir verðmætasköpun hjá þjóðinni. Við vitum að velferð og verðmætasköpun eru bara tvær hliðar á sama peningi. Þetta hangir mjög mikið saman. Það eru mjög fögur markmið, það eru umhverfissjónarmiðin, hagkvæmni, gagnsæi. Þetta er allt eitthvað sem við getum tekið undir. Það sem er hins vegar sláandi eru stóru prinsippmálin sem við í Viðreisn höfum m.a. verið að leggja áherslu á og það eru auðlindaákvæði í stjórnarskrá og tímabinding heimilda. Til að mynda lagði hæstv. ráðherra fram frumvarp sem fól ekki í sér neina tímabindingu nýtingar á fjörðum landsins fyrir fiskeldi. Það hefur nú verið dregið til baka og sem betur fer er skilningur fólks á því að það þarf að tímabinda heimildir til nýtingar á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar eins og fjörðunum okkar. Ég er á því að tímabindingin geri tvennt. Annars vegar auðveldar hún verðlagningu hverju sinni á nýtingu auðlinda í sameign þjóðarinnar. Þetta er annars vegar. Hins vegar festir tímabindingin og tímabundið auðlindaákvæði í stjórnarskrá eignarhald þjóðarinnar í sessi með ótvíræðum hætti með því að tryggja það þannig í stjórnarskrá. Þetta eru því risamálin.

Þetta er fínt plagg og ég held að við getum verið sammála því í megindráttum en það má að mínu mati ekki sneiða fram hjá grundvallarprinsippspurningum í íslensku samfélagi og það er m.a. út af því sem því miður er ósætti um þessar frábæru atvinnugreinar.

Getur hæstv. ráðherra sagt mér, af því að ég veit að Vinstri græn vilja auðlindaákvæði í stjórnarskrá en án tímabindingar, hvernig við bætum stöðuna í dag? Eða eru Vinstri græn tilbúin, og hugsanlega undir nýrri forystu þá, að segja já, (Forseti hringir.) við viljum auðlindaákvæði í stjórnarskrá og já, við viljum tímabindingu heimilda (Forseti hringir.) á þeim auðlindum sem eru í eigu og sameign þjóðarinnar?