155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sjávarútvegsstefna til ársins 2040.

233. mál
[18:52]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það snýr kannski ekki beint að þessari stefnu en ég tek undir að við Vinstri græn hefðum viljað auðlindaákvæði í stjórnarskrá og það er búið að reyna við það, ásamt öðrum ákvæðum, dálítið oft eins og hv. þingmaður þekkir nú vel til. Það er margt þar undir sem skiptir máli og ég myndi vilja hafa fleiri auðlindaákvæði er vörðuðu fleiri þætti en bara sjávarútveginn í stjórnarskrá. Ég tel að það sé mikilvægt og sú umræða þarf auðvitað bara að fara fram. Ég ætla ekkert að úttala mig hér um það orð sem steytti á að einhverju leyti síðast, með tímabundið og ekki tímabundið. Það voru skiptar skoðanir innan stjórnmálaflokka hér á Alþingi um það. Ég held að fyrst og fremst verðum við að ná saman um það, flokkarnir sem sitja á Alþingi, og ég veit að hæstv. forsætisráðherra ætlar að reyna að eiga þetta samtal áfram og fylgja eftir þeirri vinnu sem var hér á síðasta þingvetri um m.a. þetta. Ég vona svo sannarlega að við náum saman um þetta af því að ég tel að breytingar eins og þessar — þó að við náum kannski ekki mörgu öðru fram en ef við næðum þessu fram þá held ég að við værum að tala dálítið mikið við þjóðina okkar sem hefur krafist þess að auðlindaákvæði verði sett í stjórnarskrá, a.m.k. stór hluti hennar. Þannig að ég held að við eigum ekki endilega að hengja okkur í orðfæri heldur fyrst og fremst að reyna að koma þessu inn. Hvort það verður niðurstaðan að það verði tímabundið eða ekki, það á þá bara eftir að koma í ljós í þeirri vinnu sem ég trúi að hv. þingmaður sé í fyrir sinn flokk. Ég veit það samt ekki, það hafa gjarnan verið formennirnir sem hafa verið að ræða þessi mál. Þannig að ég vona sannarlega að það verði.