155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sjávarútvegsstefna til ársins 2040.

233. mál
[18:54]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er afar hugsi eftir þessa ræðu. Orðfæri, það er lykilatriði. Þegar við tölum um tímabindingu þá erum við að festa með ótvíræðum hætti í sessi eignarhald þjóðarinnar á auðlindum þjóðarinnar. Ég er sammála ráðherra um að þetta gildir ekki bara um sjávarútveginn. Þetta gildir um alla auðlindanýtingu. Þess vegna er m.a. tímabinding á nýtingu orku, á nýtingu í öðrum samningum sem hægt er að tiltaka, í mörgum þáttum. Það sem hefur m.a. komið fram í vinnu formanna — og það er rétt að ég er búin að vera núna í sjö ár í vinnu formanna — er að það var bara einn flokkur sem vildi ekki tímabindingu. Vinstri græn nýttu ekki tækifærið til þess að knýja þetta í gegnum þingið, fara með þetta í gegnum þingið. Við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn stóð gegn því að tímabinda en af því að það þurfti að halda ríkisstjórninni saman þá var ekki þrýst á það.

Núverandi formaður Framsóknarflokksins hefur lagt fram tillögur. Ég er ekki alveg fullkomlega sammála þeim en það eru tillögur sem fela í sér tímabindingu heimilda frá 17 og upp í 22 ár. Við getum alveg diskúterað útfærsluna. Það eru aðrir flokkar sem eru reiðubúnir til þess að stíga þetta skref. Þetta er risa pólitískt hagsmunamál og ég held að þetta sé lykillinn að því að við náum á endanum sátt um þessa mikilvægu atvinnugrein sem er lýst ágætlega í þessu plaggi. Eins og ég segi er margt mikilvægt og gott í þessu plaggi en það er erfitt að fara áfram nema það verði hér forysta um að við tryggjum með ótvíræðum hætti eignarhald þjóðarinnar á öllum auðlindum í sameiginlegri eigu hennar, þar með talið sjávarauðlindinni. Þetta er ekki bara eitthvert orðfæri, þetta er prinsippmál. Fyrir vikið ýtir það einmitt líka undir gagnsæið sem hæstv. ráðherra vill draga fram. Ég styð það; gagnsæi, gagnkvæmni, hagkvæmni, allt þetta. (Forseti hringir.) Tímabinding heimilda og auðlindaákvæði í stjórnarskrá styður þau markmið þessarar stefnu.