155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

sjávarútvegsstefna til ársins 2040.

233. mál
[19:31]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvert hv. þingmaður er að fara þegar hann spyr: Hvaða samkeppni? Hvaða alþjóðlega samkeppni er í íslenskum sjávarútvegi? Þetta er ekki samkeppni um veiðar sem slíkar, þetta er ekki samkeppni um hver flakar fiskinn hraðast eða veiðir mest á stystum tíma, þetta er samkeppni um að selja afurðina á erlendum mörkuðum og hefur alltaf snúist um það. Þetta hefur alltaf snúist um að selja afurðina á erlendum mörkuðum. Út á hvað annað ætti þetta að ganga, herra forseti?

Herra forseti. Íslenskur sjávarútvegur á í alþjóðlegri samkeppni við sjávarútveg annars staðar í heiminum sem ég get upplýst hv. þingmann um að er stundaður í töluvert miklum mæli af mörgum þjóðum. Hann á líka í samkeppni um val neytenda um allan heim, um hvaða matvæli þeir kjósa að kaupa sér og neyta. Er það fiskur eða kjöt? Er það grænmeti eða er það eitthvert vegan dót? Þetta er alþjóðleg samkeppni og það er lykilatriði upp á arðsemi greinarinnar fyrir íslenska þjóð að greinin standi sig í alþjóðlegri samkeppni, ella væri ekkert upp úr þessu að hafa, herra forseti. Það væri ekkert upp úr þessu að hafa. Það yrði engin verðmætasköpun. Það hefur sýnt sig hvað gerist þegar þjóð stendur sig ekki í alþjóðlegri samkeppni eða atvinnugreinin stendur sig ekki í alþjóðlegri samkeppni.