sjávarútvegsstefna til ársins 2040.
Herra forseti. Sterk staða íslensks sjávarútvegs á alþjóðamörkuðum er ekki sjálfgefin. Hún er alls ekki sjálfgefin. Það þarf að hafa fyrir henni. Greinin þarf að hafa fyrir henni hvern einasta dag. Hvern einasta dag þarf að tryggja að greinin sé framsækin, að hún sé í nýsköpun, hún sé í markaðsstarfi, hún sé að tileinka sér nýjustu tækni, auka framlegð, auka hagræðingu til að hámarka virði þess verðmætis sem náð er í úr hafinu. Þetta er barátta upp á hvern einasta dag og það er ekki sjálfgefið að það takist þannig til en blessunarlega hefur það gert það hingað til.
Það er hlutverk stjórnvalda, herra forseti, að gera hvað hægt er til að tryggja að sá rammi sem greininni er búinn stuðli að því að greinin nái áfram árangri og hafi sterka samkeppnisstöðu á alþjóðlegum mörkuðum. Það er hægt að eyðileggja góða stöðu með of íþyngjandi reglugerðum, boðum og bönnum. Það er hægt að eyðileggja þá stöðu sem íslenskur sjávarútvegur er í með of íþyngjandi álögum, með því að skattleggja greinina þannig að enginn ávinningur verði eftir til frekari fjárfestinga eða nýsköpunar. Það er trygg leið til þess að gera íslenska þjóð fátækari og það er að eyðileggja íslenskan sjávarútveg með þessum hætti. Að skattleggja greinina úr hófi er líka trygg leið til að auka samþjöppun í greininni þar sem minni aðilar standa ekki undir þeim skuldbindingum. Það er algerlega vís leið. Auðlindagjald eins og það er lagt á í íslenskum sjávarútvegi í dag er hreinn landsbyggðarskattur.