155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

Störf þingsins.

[10:43]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Í viðtölum í fjölmiðlum fyrr í vikunni sagði ung kona frá þeim átökum sem hún og fjölskylda hennar hafa þurft að eiga í til þess að hún fái þá þjónustu sem hún á rétt á samkvæmt lögum um notendastýrða persónulega aðstoð. Margoft hefur verið rætt hvernig ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um takmarkaðar fjárveitingar til þessa úrræðis takmarka réttindi fólks sem þó eru skýr. Spurningin sem kemur upp er: Er virkilega hægt að setja hámarkskrónutölu á réttindi fólks? Ef svo er þá samræmist það í fyrsta lagi alls ekki ábendingum sem nefnd Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram um réttindi fatlaðs fólks samkvæmt samningi sem við höfum skuldbundið okkur til að framfylgja. Nefnd Sameinuðu þjóðanna hefur talað skýrt: Fjárhagsáætlanir má ekki nota til að takmarka réttindi fólks. Svo virðist þó sem stjórnvöld séu að gera einmitt það, skerða réttindi fólks og mismuna því á óljósum grunni vegna takmörkunar á fjármunum í stað þess að styðja við skýran rétt fatlaðs fólks til að lifa sjálfstæðu lífi. Setjum við fjöldatakmarkanir í grunnskóla landsins, á spítalana? Nei. Það gerum við ekki. Má vera að það sé svo að stjórnvöld líti svo á að í tilviki notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar sé um einhvers konar lúxusþjónustu að ræða sem mæta megi afgangi? Ef það var fólki ekki ljóst fyrir þá ættu þær dæmisögur á dæmisögur ofan sem við höfum séð í fjölmiðlum að gera öllum ljóst að fyrir þá einstaklinga sem þurfa á þessari þjónustu að halda er svo sannarlega ekki um neinn lúxus að ræða. Ráðstöfun ríkisfjármuna snýst um forgangsröðun, ekki það að ríkiskassinn sé tómur. Þar ættu grundvallarréttindi fólks alltaf að vera í forgrunni. Við megum ekki leyfa fjárhagslegum takmörkunum að draga úr þeim réttindum sem allir einstaklingar eiga að njóta lögum samkvæmt.