Störf þingsins.
Frú forseti. Það kemur ekki á óvart að hér hafa nokkrir þingmenn rætt um mansal. Í þættinum Kveik sáum við hvernig erlendir starfsmenn sem eru ráðnir í gegnum starfsmannaleigur eru jafnvel blekktir til að taka við starfinu út frá röngum upplýsingum, t.d. um laun, vinnutíma, aðbúnað á vinnustað og húsnæði, og jafnvel er hótunum beitt til þess að koma í veg fyrir að þetta fólk sæki rétt sinn eða segi upp störfum.
Fyrir nákvæmlega sex árum fjallaði sami þáttur um nákvæmlega sama hlutinn og sá þáttur vakti líka mikla athygli og hér voru haldnar miklar ræður. Þess vegna er sorglegt að það hafi ekkert þokast í réttari átt. Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur hjá lögfræði- og vinnumarkaðssviði ASÍ, staðfestir að hér hafi mansal og misneyting launafólks þrifist í mörg ár og vandamálið sé vaxandi og launþegahreyfingin hafi kallað eftir aðgerðum stjórnvalda.
Herra forseti. Þó að til séu lög þá þarf að gera þau betri. Það má t.d. horfa til tillagna sem Samfylkingin hefur lagt fram. En það þarf líka að tryggja að hér séu nægileg verkfæri til þess að fylgja eftir þeim lögum sem til eru. Það er þannig núna að það eru einungis þrír hjá lögreglunni sem starfa við að rannsaka mansal og það þyrfti samkvæmt lögreglunni að bæta við sex einstaklingum þar. Starfsmenn lögreglunnar segja að það sé sárt og erfitt að vita af mansali en geta ekki brugðist við því.
Frú forseti. Í þessum töluðu orðum er ráðstefna á vegum ASÍ og SA um vinnumansal. Samtökin hafa sent frá sér yfirlýsingu og það er augljóst á henni að boltinn er ekki síst hjá stjórnvöldum.